Innlent

Þremur bifreiðum stolið í Þorlákshöfn

Þorlákshöfn
Þorlákshöfn Mynd/ GVA
Sá fátíði atburður átti sér stað um helgina að þremur bifreiðum var stolið í því sem virðist vera þrjú óskyld atvik, og það allt á Þorlákshöfn.

Tveir ölvaðir ungir menn tóku eina bifreið ófrjálsri hendi og klesstu henni á annan bíl áður en þeir luku ökuferðinni inni í húsgarði. Mennirnir voru handteknir og færðir í yfirheyrslu en miklar skemmdir urðu á báðum bifreiðunum.

Önnur bifreið var tekin sama kvöld og fannst óskemmd næsta dag en sú þriðja, sem stolið var aðfaranótt sunnudags, fannst seinna fyrir utan bæinn þar sem rúða hafði verið brotin og tösku, sem í var fartölva, hafði verið stolið. Lögreglan biður alla þá sem veitt geta upplýsingar um málið að hafa samband í síma 480-1010

Í öllum þremur tilvikum voru ökutækin ólæst og lyklar aðgengilegir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×