Innlent

Þrjú ungmenni slösuðust í bílslysi

Þrjú ungmenni slösuðust, en ekki lífshættulega, þegar bíll þeirra hafnaði utan vegar við Akureyri í gærkvöldi og stakkst inn í moldarbarð.

Fólkið hlaut beinbrot og skurði og var flutt á sjúkrahúsið á Akureyri þar sem það dvelur enn og gengst undir frekari aðgerðir í dag.

Slysið varð á svonefndum Súluvegi, sem er malarvegur. 17 ára stúlka ók bílnum og er talið að lausamöl og reynsluleysi hafi valdið því að hún missti stjórn á bílnum, sem talinn er ónýtur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×