Erlent

Saleh á batavegi en óvíst hvort hann snúi aftur til Jemen

Ali Abdullah Saleh forseti Jemen er sagður vera á batavegi eftir aðgerð sem hann gekkst undir á sjúkrahúsi í Saudi Arabíu. Aðgerðin var vegna sára sem forsetinn hlaut í tilræði við hann síðast liðinn föstudag.

Hinsvegar er mjög óljóst hvort Saleh snúi aftur til Jemen þótt hann segist sjálfur ætla að gera slíkt. Bæði Bandaríkjamenn og Bretar beita nú Saudi Araba miklum þrýstingi að hleypa honum ekki úr landi.

Samningar munu standa yfir um að Saleh láti af völdum en fái í staðinn frið frá málsóknum og nægilegan lífeyri til að sjá sér farboða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×