Innlent

Meintur bankaræningi handtekinn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Maðurinn var með steinhellu sem hann ógnaði starfsfólki með.
Maðurinn var með steinhellu sem hann ógnaði starfsfólki með.
Tvítugur karlmaður hefur verið handtekinn vegna ránstilraunar í útibúi Arion banka í morgun. Lögreglan segir að vegna upplýsinga sem almenningur hafi komið á framfæri við lögreglu hafi karlmaðurinn verið handtekinn og hafi hann játað verknaðinn. Hann gistir nú fangageymslur lögreglu, segir á fésbókarsíðu lögreglunnar. Maðurinn verður yfirheyrður í fyrramálið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×