Flest efnahagsbrotamál í ákærumeðferð á árinu 2013 Þorbjörn Þórðarson skrifar 29. maí 2011 18:49
Búast má við að stærstur hluti mála sem eru á borði Sérstaks saksóknara verði í ákærumeðferð á árinu 2013, segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari. Ákærur verði þó gefnar út jafnóðum og rannsókn mála ljúki. Á sérstakri málstofu um meðferð stórra efnahagsbrotamála á lagadeginum svokallaða sem haldinn er árlega á vegum Lögfræðingafélagssins, Lögmannafélagsins og Dómarafélags Íslands sköpuðust umræður um hvenær von væri á ákærum í stórum efnahagsbrotamálu hjá sérstökum saksóknara en eins og fréttastofan hefur greint frá kann óútskýrður dráttur á rannsóknum að leiða til frestunar eða niðurfellingar refsingar, samkvæmt lögum um meðferð sakamála. Stöð 2 hefur heimildir fyrir því að orð sem látin voru falla á fundinum hafi valdið áhyggjum meðal lögmanna því þar hafi komið fram að meginþungi dómsmeðferðar í sakamálum sem væru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara yrði ekki fyrr en á árinu 2013. Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, sagði við fréttastofu í dag að efnislega hefði komið fram á málstofunni að meginþungi rannsókna verði á næstu tveimur árum en þegar komið verði fram á árslok 2012 og 2013 verði áherslurnar komnar frekar inn í rekstur mála fyrir dómi. Ólafur Þór sagði að nú um stundir væri allt embættið undirlagt af rannsóknum. Ekki væri gert ráð fyrir því að það yrði alltaf þannig því álagið flyttist til á síðari hluta tímabilsins og eftir atvikum kæmust mál í ákærumeðferð jafnóðum. Ólafur Þór sagði að mikil áhersla væri lögð á hraða meðferð mála eins og kostur væri. Hann sagði rangt að halda því fram að ekki yrði ákært í stóru málunum fyrr en á árinu 2012 og 2013 en enn sem komið er hefur embætti hans gefið út ákærur í tveimur málum. Miðað við núverandi áætlun er gert ráð fyrir að embætti hans ljúki störfum á árinu 2014.
Mest lesið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Lögregla lýsir eftir Helga Innlent Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Innlent Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Innlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Erlent Fleiri fréttir Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Aukin skriðuhætta og breytt hlutverk kirkjunnar Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Sjá meira