Ekki forsendur fyrir nýjum flokki með Evrópusinnuðum sjálfstæðismönnum Þorbjörn Þórðarson skrifar 29. maí 2011 18:39
Þorsteinn Pálsson segir ekki forsendur fyrir að breikka grunn Samfylkingarinnar í nýjum flokki með Evrópusinnuðum sjálfstæðis- og framsóknarmönnum, eins og Jóhanna Sigurðardóttir bauð upp á í ræðu sinni á flokksstjórnarfundinum í dag. Jóhanna hafi fært Samfylkinguna of langt til vinstri til að svo megi verða. Forsætisráðherra viðraði þann möguleika á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar að ESB-sinnar í flokkum sem hefðu ekki aðild á sinni stefnuskrá sameinuðust Samfylkingunni jafnvel undir nýju nafni. „Hversu lengi ætla Evrópusinnar að starfa í flokkum sem berjast leynt og ljóst gegn aðildarviðræðum? Hversu lengi ætla þeir sem viðurkenna að íslenska krónan býður atvinnulífi og heimilum landsins ekki uppá annað en viðvarandi höft og takmarkanir að starfa í flokkum sem skella skollaeyrum við þessu mikilvæga hagsmunamáli ?" spurði forsætisráðherra í ræðu sinni í dag, en hún nefndi sérstaklega Framsóknarflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn í þessu samhengi. „Breytt skipulag, nýtt nafn, ný forysta eða annað á ekki að standa í vegi fyrir því að þessi mikilvægu málefni fái kröftugan framgang og jafnaðarmenn í öllum flokkum geti sameinast á öflugum flokksvettvangi," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra, segir mjög ósennilegt að Evrópusinnaðir sjálfstæðismenn geti unnið með Samfylkingunni í nýju stjórnmálaafli. „Forsætisráðherra er að færa Samfylkinguna lengra til vinstri. Það sem ríkisstjórnin er að gera í efnahagsmálum bendir til að ríkisstjórnin ætli að fjarlægjast þau markmið sem ríkisstjórnin þarf að uppfylla eigi landið að ganga í Evrópusambandið. Ég á því frekar von á því að Evrópusinnar í Samfylkingunni fari úr henni og leiti annað en að eitthvað af þessu tagi gerist," segir Þorsteinn.
Mest lesið Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Erlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Ólafur Vignir píanóleikari látinn Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Innlent Fleiri fréttir Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Aukin skriðuhætta og breytt hlutverk kirkjunnar Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Sjá meira