Nóg að þjóðin hafi þurft að greiða fyrir síðasta gleðskap þessa fólks 29. maí 2011 13:17 Frá fundinum í dag sem haldinn var í FG. Mynd/Sigurjón „
Þó enn sé víða við erfiðleika að glíma og enn sé óvissa varðandi ýmis mál hefur ekki verið bjartara yfir íslensku efnahagslífi um langa hríð," sagði Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar á flokkstjórnarfundi flokksins í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ í dag. Jóhanna sagði að samanburður á stöðuefnahagsmála núna og þegar ríkisstjórnin tók við sé eins og að bera saman svart og hvítt. „Þá horfðum við framá djúpa kreppu og rýrnandi lífskjör. Hagvaxtarbólan var sprunginn, bankakerfið hrunið, gengið fallið um nærri 50% og fordæmalaust samdráttarskeið í þjóðarframleiðslu og lífskjörum blasti við þjóðinni. Þjóðfélagið logaði í ílldeilum og eldar loguðu á torgum," sagði Jóhanna. „Nú, rúmum tveimur árum síðar - þremur eldgosum, þremur Icesave samningum og fimm almennum kosningum síðar, er hagkerfið byrjað að vaxa á ný og við okkur blasir hagvaxtarskeið, með frið á vinnumarkaði og raunverulegri lífskjarasókn með minnkandi atvinnuleysi og auknum kaupmætti launafólks." Hún sagði að verðbólgan hafi lækkað verulega, úr 18, prósentum í 3,4 prósent „og þrátt fyrir verðbólguskot sl. mánuði sem væntanlega mun ganga til baka, hefur hún ekki verið lægri síðan árið 2005. Vextir hafa lækkað úr 18% í 4,25% og hafa aldrei verið lægri. Skuldatryggingarálag hefur lækkað úr ríflega 1000 stigum í ríflega 200 stig - og ekki verið lægra frá hruni." „Ofurlaunaliðið, fjárglæframennirnir og stóreignaelítan fær ekki að soga til sín hagvöxtinn sem framundan er ef við fáum að ráða. Það er nóg að þjóðin hafi þurft að greiða fyrir síðasta gleðskap þessa fólks. Sú svallveisla var haldinn undir lúðrablæstri frjálhyggjutrúboðs Sjálfstæðisflokksins. Lífskjarasóknin sem framundan er verður hinsvegar á forsendum jafnaðarstefnunar," sagði Jóhanna meðal annars í ræðu sinni í dag.
Mest lesið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Lögregla lýsir eftir Helga Innlent Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Innlent Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Innlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Trump bakkar frá samkomulagi um kappræður Erlent Fleiri fréttir Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Aukin skriðuhætta og breytt hlutverk kirkjunnar Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Sjá meira