Viðskipti erlent

Bretar vilja frysta eigur Mubaraks

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Mubarak sagði af sér embætti fyrir helgina. Mynd/ afp.
Mubarak sagði af sér embætti fyrir helgina. Mynd/ afp.
Skorað hefur verið á bresk stjórnvöld að frysta allar eigur Hosni Mubaraks, fyrrverandi forseta Egyptalands, sem hann á í Bretlandi.

Breski fréttavefurinn Daily Mail segir að efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, The Serious Fraud Office, leiti nú að miklum verðmætum sem Mubarak og fjölskylda hans komu út úr Egyptalandi í tíð þrjátíu ára ógnarstjórnar Mubaraks. Talið er að eignir Mubaraks nemi um 8300 milljörðum íslenskra króna. Stór hluti þeirra eigna er geymdur í breskum og svissneskum bönkum og í fasteignum í Lundúnum, París, New York, Dubai og hluta Egyptalands.

Talsmaður bresku efnahagsbrotadeildarinnar segir í samtali við Daily Mail að mjög líklegt sé að stór hluti eignanna sé í Bretlandi, en ekki sé vitað hve miklar eignir það eru. Svissnesk stjórnvöld tilkynntu að eignir Mubaraks hefðu verið frystar einungis örfáum klukkustundum eftir að hann sagði af sér embætti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×