Viðskipti erlent

Steve Jobs aftur í veikindafrí frá Apple

Steve Jobs forstjóri Apple er aftur farinn í veikindafrí. Hann tilkynnti starfsfólki þetta í tölvupósti í dag.

Í frétt um málið á BBC segir að þrátt fyrir veikindafríið muni Jobs áfram koma að mikilvægum ákvörðunum innan fyrirtækisins. Dagleg stjórn Apple verður hinsvegar í höndum Tim Cook.

Síðari hluta ársins 2008 og fram á árið 2009 var Jobs í um sex mánaða veikindafríi í kjölfar þess að hann lét skipta um lifur í sér.

Í tölvupóstinum segir Jobs að hann muni snúa aftur til vinnu eins fljótt og auðið er.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×