Innlent

Hanna Birna: Óafsakanlegt að skila of seint

Hanna Birna er ósátt við seinagang í stjórnsýslu borgarinnar
Hanna Birna er ósátt við seinagang í stjórnsýslu borgarinnar
Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, segir það grafalvarlegt og algjörlega óafsakanlegt að svo stórt sveitarfélag sem Reykjavíkurborg er, sinni því ekki að lögum og reglum með þeim afleiðingum að borgaryfirvöldum er hótað því að viðurlögum verði beitt ef ekki verði bætt úr hið fyrsta.

Aukafundur í borgarstjórn, sem minnihlutinn boðaði til, hófst klukkan tvö og voru borgarfulltrúar kallaðir úr sumarleyfi til að mæta á fundinn.

Ástæðan er sú að tæplega hálft ár er liðið síðan Reykjavíkurborg átti að skila inn þriggja ára fjárhagsáætlun og hefur borgarstjórn borist bréf frá innanríkisráðuneytinu þar sem gefinn er frestur til 18. ágúst til að skila áætluninni, ella verði gripið til aðgerða.

Jón Gnarr borgarstjóri kynnti í upphafi fundarins framreiknaða áætlun og sagðist umgjörðin í kring um skil á áætluninni einkennast af formfestu.

Fundurinn stendur enn yfir en boðað hefur verið til annars aukafundar miðvikudaginn 17. ágúst til að kára vinnu við áætlunina innan þess frests sem innanríkisráðuneytið hefur gefið.


Tengdar fréttir

Segir ekkert lagt í þriggja ára áætlun meirihlutans

Aukafundur hefst í Borgarstjórn Reykjavíkur klukkan tvö í dag en minnihlutinn óskaði eftir því að fundurinn færi fram. Á fundinum mun meirihlutinn leggja fram þriggja ára fjárhagsáætlun eins og skylt er að gera, en það hefur dregist frá því í febrúar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×