Erlent

Nýi maðurinn í lífi Jennifer Lopez kærður fyrir nauðgun

Mynd/Getty
Maðurinn sem stórstjarnan Jennifer Lopez er sögð hafa haldið við hefur verið kærður fyrir nauðgun. William Levy er talinn hafa brotið gegn ólögráða unglingsstúlku á hóteli í Glendale í Kaliforníu.

Greint var frá því síðastliðið föstudagskvöld að stórstjörnurnar Jennifer Lopez og Marc Anthony væru skilin eftir sjö ára hjónaband. Parið á þriggja ára gamla tvíbura. Tilkynningin kom nokkuð á óvart og fóru í framhaldinu af stað sögusagnir um framhjáhald og að Lopez og fyrirsætan og leikarinn William Levy væru ástfangin. Levy hefur verið kallaður hinn kúbanski Brad Pitt. Hann hefur neitað öllum sögusögnum um að eiga vingott við stórstjörnuna.

Nú hefur hefur unglingsstúlka sem fyrr segir kært Levy fyrir nauðgun. Levy er þekktur fyrir leik sinn í sápuóperum og af þeim ástæðum bað unglingsstúlkan hann um eiginhandaáritun. Levy er sagður hafa boðið henni með sér afsíðis á hótelinu í Glendale þar sem hann braut síðan gegn henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×