Erlent

Murdoch vissi ekki neitt

Óli Tynes skrifar
Rupert Murdoch
Rupert Murdoch
Fyrirtækið News Corp sem heldur utanum rekstur fjölmiðla Rúperts Murdoch segir að óvandað fólk í lágum stöðum innan fyrirtækisins hafi svikið og gabbað stjórnendur þess, þar á meðal Murdoch sjálfan.

 

 Stjórnendurnir hafi ekki vitað um hleranirnar, ekki einusinni Rebekha Brooks sem var aðalritstjóri News of The World í þrjú af þeim árum sem þær voru stundaðar. Brooks og Murdoch feðganir koma fyrir breska þingnefnd í dag þar sem þau verða spurð spjörunum úr um þeirra þátt í hneykslinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×