Innlent

Búist við töfum á Sæbraut vegna malbikunar

Mynd úr safni GVA
Búast má við töfum á umferð um Sæbraut vegna malbikunar milli Laugarnesvegar og Langholtsvegar fram eftir degi í dag. Í framhaldi af því verður Reykjanesbraut malbikuð frá Sprengisandi við Bústaðaveg að Breiðholtsbraut.

Lögreglan beinir því til ökumanna að virða vegmerkinga og fara að öllu með gát.

Þessu til viðbótar þá var í morgun byrjað að fræsa og malbika Bæjarháls milli Hraunbæjar og Stuðlaháls. Þar má búast við töfum á umferð og því er skynsamlegt fyrir ökumenn að finna sér hjáleið í gegnum iðnaðarhverfið norðan megin við Bæjarhálsinn í stað íbúðahverfisins að sunnanverðu.

Þá er vakin athygli á því að malbikun er lokið á Miklubraut og Hringbraut.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×