Innlent

Fálkaungi í vörslu lögreglunnar

Mynd/AP
Fálkaungi er nú í vörslu lögreglunnar á Akureyri og verður afhentur Nátttúrufræðistofnun í dag. Fólk á gönguför ofan við bæinn, sá til ungans í gærkvöldi og náði að handsama hann, enda virðist hann vannærður og afræktur af foreldri sínu.

Lögreglumenn hafa í nótt reynt að freista ungans með ýmsum kræsingum, en hann hefur ekki litið við neinu og virðist miður sín. Það hefur svo sem hent fleiri sem lenda innan veggja lögreglustöðva, en velviljaðir lögreglumennirnir binda vonir við að fuglafræðingar nái að glæða fálkaungann lífsvilja á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×