Erlent

Hillary hættir á næsta ári

Hillary Clinton.
Hillary Clinton. Mynd/AP
Hillary Clinton hyggst láta af störfum sem utanríkisráðherra Bandaríkjanna á næsta ári óháð því hvort Barack Obama verður endurkjörinn forseti. Hún segist vera orðin þreytt á stanslausum ferðalögum sem fylgi starfinu og hún vilji þess í stað eyða meiri tíma með fjölskyldu sinni og vinum.

Hillary verður 64 ára í haust. Hún sóttist eftir því að verða forsetaefni demókrata í síðustu kosningum en beið lægri hlut fyrir Obama. Eftir að Hillary og eiginmaður hennar yfirgáfu Hvíta húsið náði hún kjöri í öldungadeild Bandaríkjaþings fyrir New York.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×