Innlent

Bolvíkingar þéna vel á frístundaveiðunum

Frístundaveiðimaður með mikinn feng Frank Petzold dró í fyrra úr Djúpinu þennan methlýra sem vó 20 kíló svo þetta eru gjöful mið sem allur þessi fjöldi frístundaveiðimanna sækir í fyrir vestan. mynd/róbert schmidt
Frístundaveiðimaður með mikinn feng Frank Petzold dró í fyrra úr Djúpinu þennan methlýra sem vó 20 kíló svo þetta eru gjöful mið sem allur þessi fjöldi frístundaveiðimanna sækir í fyrir vestan. mynd/róbert schmidt
Um 760 ferðamenn koma til Bolungarvíkur í ár til að stunda frístundaveiðar, segir Haukur Vagnsson, framkvæmdastjóri Víkurbáta. Fjöldi slíkra ferðamanna hefur þrefaldast hjá fyrirtækinu í samanburði við síðasta ár. Það tók á móti 130 ferðamönnum í fyrra en þeir verða 380 í ár.

Hann segir enn fremur að gera megi ráð fyrir að þessi fjöldi skili 380 milljónum í tekjur til Bolungarvíkur. Fyrirtæki hans er einnig með annars konar ferðaþjónustu og segir hann að heildarfjöldi þeirra sem nýti sér þjónustu þess sé um 500 og að alls komi rúmlega 900 ferðamenn til Bolungarvíkur eða álíka margir og þar eru búsettir.

Haldinn var opinn fundur í Bolungarvík í síðustu viku þar sem bæjarbúar réðu ráðum sínum svo bærinn gæti með sem bestu móti tekið við þessum fjölda ferðamanna.

Elías Jónatansson, bæjarstjóri Bolungarvíkur, segir þennan nýja iðnað vera mikilvæga viðbót fyrir samfélagið á staðnum. „Það sem er einnig mjög gott við þessa ferðamennsku er það að ferðatíminn er mun lengri en þessi hefðbundni íslenski ferðatími af því að sjóstangveiðimennirnir koma fyrr á vorin og fara seinna á haustin," segir hann. Haukur segir að í ár hafi fyrstu ferðamennirnir komið í seinni hluta apríl og bókað sé fram í lok september.

Finnur Jónsson, framkvæmdastjóri Icelandic Sea Angling, sem rær til frístundaveiða frá Bolungarvík meðal annarra staða, segir að í heildina komi um 2.000 ferðamenn til frístundaveiða á Vestfjörðum í ár en það sé um tíu prósenta samdráttur frá því í fyrra.

„Mín reynsla sýnir að veiðimennirnir koma aftur og aftur til Vestfjarða," segir Finnur. „En flestir þeirra kjósa að skipta um stað og nú renna öll vötn til Tálknafjarðar hjá okkur, þar hefur fjöldinn tvöfaldast í ár, kannski flyst þessi ásókn eitthvert annað á næsta ári."

Víkurbátar slá ekki aðeins aðsóknarmet um þessar mundir því nýlega bættu þeir öðru heimsmeti í fiskisögu sína. Frægt er þegar bátur frá þeim kom með 219 kílóa lúðu að landi í fyrra, sem er heimsmet. Þá kom rússneskur veiðimaður, sem reyndar er fulltrúi Rússa í Alþjóðasamtökum sjóstangveiðimanna, með 20 kílóa þorsk að landi í maí síðastliðnum sem er einnig heimsmet. „Hann var afar stoltur af þessu og reyndar var mikið fjallað um þetta í rússneskum fjölmiðlum, veit ég," segir Haukur. jse@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×