Innlent

Sáttin undirrituð - Sigrún Pálína styrkir Stígamót

Sátt milli þjóðkirkjunnar annars vegar og Dagbjartar Guðmundsdóttur, Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur og Stefaníu Þorgrímsdóttur hins vegar var undirrituð í dag og gaf Sigrún Pálína Stígamótum eina milljón króna samdægurs.

Sanngirnisbæturnar sem greiddar eru í dag eru fimm milljónir króna. Að auki fær Sigrún Pálína Ingvarsdóttir greiddan útlagðan kostnað. Tekið var mið af sanngirnisbótum sem greiddar voru í svonefndum vistheimilamálum ríkisins.

Nefnd kirkjuþings mun vinna áfram að umbótatillögum í samstarfi við sérfræðinga og verða þær lagðar fyrir kirkjuþing í nóvember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×