Innlent

Mikil sókn í makrílveiðar við landið

Bátar af öllum stærðum og ferðum eru nú byrjaðir makrílveiðar, en framundir þetta hafa aðeins stór skip náð árangri við veiðarnar.

Óvenju mikil sjósókn er nú, þrátt fyrir að allur strandveiðiflotinn sé í landi vegna helgarstopps, en það skýrist af makrílveiðunum.

Gott verð fæst fyrir makrílinn, sem unnin er til manneldis. En það eru ekki bara atvinnusjómenn sem veiða hann grimmt, Því undanfarna daga hefur hann veiðst vel af bryggjum til dæmis á Reykjanesi og á Snæfellsnesi, þar sem ungir og aldnir hafa rennt fyrir hann með góðum árangri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×