Tíu þúsund kassar hverfa á hverju ári 22. júlí 2011 09:00 Hver kassi kostar 1.200 til 1.500 krónur. Með því að skila þeim ekki valda menn öðrum tjóni.fréttablaðið/
Sölufélag garðyrkjumanna tapar 12 til 15 milljónum króna á ári vegna affalla á kössum sem grænmetið er flutt í til verslana. „Við ákváðum að hætta notkun á pappakössum og keyptum í staðinn græna plastkassa sem eru umhverfisvænir og endurnýtanlegir. Þeir hafa verið í notkun í yfir áratug en undanfarin þrjú ár hafa horfið um 10 þúsund kassar ári. Afföllin voru miklu minni fyrir þann tíma,“ segir Gunnlaugur Karlsson, framkvæmdastjóri sölufélagsins. Að sögn Gunnlaugs sköpuðust vandræði í fyrra vegna skorts á plastkössum en félagið er með 60 til 70 þúsund kassa í umferð. „Við lentum í stórvandræðum í fyrra því að kassarnir gufuðu hreinlega upp. Við þurftum að kaupa 10 til 15 þúsund frauðplastkassa til þess að koma uppskerunni á markað því það vantaði alla kassana sem við vorum nýbúnir að kaupa.“ Framkvæmdastjórinn kveðst hafa frétt af slíkum kössum í sumarbústöðum þar sem þeir voru notaðir undir eldivið og í bílskúrum. „Þetta er á ótrúlegustu stöðum. Heilu bakaríin virðast nota þetta undir brauð og stóreldhús undir hnífapör og diska. Ég á mynd af svona kassa um borð í varðskipi. Fólk virðist grípa þetta með sér en gerir sér ekki grein fyrir alvöru málsins. Svo verða allir voðalega æstir og reiðir þegar við tölum um þessa kassa.“ Gunnlaugur segir ómögulegt að skrá hversu margir kassar fara inn og út af hverjum stað. „Það er ekki nokkur lifandi leið að halda utan um þetta. Flutningafyrirtækin safna kössunum saman og koma með þá í þvottastöðina. Í því samhengi má benda á að það skapast vinna við þvottinn á þessum plastkössum auk þess sem við komum í veg fyrir innflutning á allt að tíu gámum af einnota pappaumbúðum vegna notkunar plastkassanna.“ Hver kassi kostar 1.200 til 1.500 krónur, að sögn Gunnlaugs. „Það fást sambærilegir kassar í til dæmis IKEA og Rúmfatalagernum. Ég held að fólk sé ekkert að pæla í því að með því að grípa þessa kassa með sér valdi það öðrum tjóni. Einhver þarf að borga þetta á endanum. Garðyrkjubændur greiða hærra gjald fyrir notkun á kössunum og svo leggst þetta út í verðlagið. En við viljum vera umhverfisvænir og þess vegna ætlum við ekki að fara að nota pappakassa á ný.“ Grænu plastkassana kaupir sölufélagið frá Englandi. „Þar er mikill fjölda kassa í umferð en afföllin eru bara brot af því sem þau eru hér,“ segir Gunnlaugur. ibs@frettabladid.is
Mest lesið Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Innlent Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Innlent Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ Innlent Nýútskrifuð kona ráðin í stað reynslumikils karls Innlent Ekki hrifin af breytingum og óskar Höllu velfarnaðar Innlent „Virðist vera partur af því að reka verslun á Íslandi í dag“ Innlent Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs Innlent Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Innlent Mohamad vill flytja af landi brott Innlent Fleiri fréttir Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílveltu í Sjálandi Hefði horft á lokakvöldið hefði Hera Björk komist áfram Bíll hafnaði utan vegar í Hafnarfirði Guðni lítillátur þegar hann sagði að allt myndi bjargast án hans Allt klárt hjá lögreglu og sjálfboðaliðum fyrir þjóðhátíð Guðni um bílakaupin umdeildu: „Myndir þú kaupa bíl af svona fólki?“ Guðni kveður og skemmdarverk á grunnskóla Þrír fluttir með sjúkrabíl eftir árekstur Egill telur eitt og annað óljóst við bílatilboð Ástþórs „Þetta gekk ágætlega, takk fyrir mig“ Von á rúmlega þrjú hundruð gestum við embættistöku Höllu Styðja íþróttafólk og hvetja ríkið til að gera slíkt hið sama Þurfi að fylgja betur eftir reglum um byggð við sprungur Árekstur jepplings og fólksbíls á Vesturlandsvegi Embættistaka forseta, veðrið um helgina og skrýtnar gistináttatölur Hjólhýsi sem búið var í að engu orðið Ekki hrifin af breytingum og óskar Höllu velfarnaðar Skólastjóri Rimaskóla í áfalli Ástand vega á Íslandi mikið áhyggjuefni Verulega hvasst í Eyjum á laugardaginn Solaris misnoti kerfið til að hrekja Helga Magnús úr starfi Segist ekki geta ábyrgst öryggi þeirra sem dvelja næturlangt í Grindavík Rúður brotnar í Rimaskóla Ofbeldi verði að lokum eina svarið gegn „cancel culture og vók hyski“ Skjálfti að stærð 3 á Reykjanestá Fjörutíu tonn af eldfimu fiskafóðri í stórskemmdum bílnum Hneykslast á ákvörðun ríkissaksóknara Flutningabíll varð alelda í Þrengslum Vegfarendum stafi hætta af auglýsingaskiltum „Munum hafa nægan tíma til að bregðast við ef við þurfum“ Sjá meira