Lífið

KLOVN gaurarnir eru ýkt NÆS

Athygli vakti að bæði Frank og Casper gáfu öllum þeim sem vildu spjalla eða láta mynda sig með þeim góðan tíma. MYNDIR/EÁ
Athygli vakti að bæði Frank og Casper gáfu öllum þeim sem vildu spjalla eða láta mynda sig með þeim góðan tíma. MYNDIR/EÁ

Félagana Casper Christiansen og Frank Hvam, sem staddir eru hér á landi til að kynna nýju kvikmyndina þeirra KLOVN, má skoða á meðfylgjandi myndum sem teknar voru á veitingahúsinu Austur í kvöld þegar SAMfélagið hélt stórglæsilega VIP veislu þeim til handa.

Félagarnir, sem gista á svítunni á Hótel Holti fljúga á Saga Class með Icelandair, sem þeir dásömuðu í bak og fyrir, aftur heim til Kaupmannahafnar klukkan 08:00 í fyrramálið.

66 gráður norður færðu félögunum dúnúlpur að gjöf og eins og myndirnar sýna voru þeir í skýjunum með úlpurnar.

Í gær, fimmtudag, pöntuðu þeir sér heimsreisuréttinn hjá Fiskfélaginu og djömmuðu síðan fram á rauðanótt í góðra vina hópi á barnum Dillon, sem er uppáhalds barinn þeirra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×