Handbolti

Úrslitin eftir bókinni í N1-deild kvenna

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stella Sigurðardóttir skoraði tíu mörk fyrir Fram í dag.
Stella Sigurðardóttir skoraði tíu mörk fyrir Fram í dag. Mynd/Vilhelm
Heil umferð fór fram í dag í N1-deild kvenna þar sem úrslit dagsins voru flest eftir bókinni.

Mesta spennan var í leik HK og ÍBV í Digranesi en þarna áttust við liðin í 5. og 6. sæti deildarinnar. HK vann þar sex marka sigur, 30-24 en ÍBV er þó enn í fimmta sætinu.

Annars unnu fjögur efstu liðin öll örugga sigra í dag. Þau þrjú efstu - Valur, Fram og Stjarnan, eru öll örugg með sæti í úrslitakeppninni en Fylkir (18 stig), ÍBV (17) og HK (15) eru að berjast um fjórða og síðasta sætið í henni.

Þrjár umferðir eru eftir af deildakeppninni og fara þær fram fyrstu þrjá laugardagana í mars.

Valur og Fram eru efst og jöfn í deildinni og mætast þau í næstsíðustu umferðinni þann 12. mars.

Úrslit dagsins og markaskorarar:

Haukar - Stjarnan 21-40 (10-17)

Mörk Hauka: Karen Helga Sigurjónsdóttir, Viktoría Valdimarsdóttir 4, Gunnhildur Pétursdóttir 4, Þórdís Helgadóttir 3, Erla Eiríksdóttir 1, Katarína Bamruk 1, Agnes Ósk Egilsdóttir 1, Ragnheiður Sveinsdóttir 1, Ásthildur Embla Friðgeirsdóttir 1, Sandra Sigurjónsdóttir 1.

Mörk Stjörnunnar: Jóna Margrét Ragnarsdóttir 8, Hanna G. Stefánsdóttir 8, Sólveig Lára Kjærnested 6, Esther V. Ragnarsdóttir 4, Þórhildur Gunnarsdóttir 3, Hildur Harðardóttir 2, Kristín Clausen 2, Elísabet Gunnarsdóttir 2, Aðalheiður Hreinsdóttir 1, Guðrún H. Guðjónsdóttir 1, Rut Steinsen 1.

Valur - ÍR 37-20 (20-7)

Mörk Vals: Hrafnhildur Ósk Skúladóttir 14, Kristín Guðmundsdóttir 6, Ragnhildur Rósa Guðmundsdóttir 5, Karólína B. Gunnarsdóttir 4, Dagný Skúladóttir 3, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir 3, Rebekka Rut Skúladóttir 1, Íris Ásta Pétursdóttir 1.

Mörk ÍR: Sif Jónsdóttir 9, Silja Ísberg 3, Þorgbjörg Anna Steinarsdóttir 3, Elzabita Kowel 3, Árný Rut Jónasdóttir.

Grótta - Fylkir 16-31 (6-14)

Mörk Gróttu: Hildur Marín Andrésdóttir 4, Helga Þórunn Óttarsdóttir 4, Fríða Jónsdóttir 2, Sigrún Birna Arnardóttir 2, Lovísa Rós Jóhannsdóttir 1, Steinunn Kristín Jóhannsdóttir 1, Alexandra Kristjánsdóttir 1.

Mörk Fylkis: Sunna María Einarsdóttir 8, Sunna Jónsdóttir 8, Nataly Sæunn Valencia 4, Unnur Ómarsdóttir 3, Anna María Guðmundsdóttir 2, Sigríður Hauksdóttir 2, Jóhanna Tryggvadóttir 2, Arna Erlingsdóttir 1, Tinna Soffía Traustadóttir 1.

HK - ÍBV 30-24 (13-10)

Mörk HK: Elín Anna Baldursdóttir 8, Brynja Magnúsdóttir 7, Elísa Ósk Viðarsdóttir 3, Tatjana Zukovska 3, Harpa Baldursdóttir 3, Tinna Rögnvaldsdóttir 2, Valgerður Ýr Þorsteinsdóttir 2, Auður Ómarsdóttir 1, Líney Guðmundsdóttir 1.

Mörk ÍBV: Ester Óskarsdóttir 11, Renata Horvath 6, Aníta Elíasdóttir 3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 2, Hildur Dögg Jónsdóttir 2.

Fram - FH 40-18 (20-7)

Mörk Fram: Stella Sigurðardóttir 10, Guðrún Þóra Hálfdánsdóttir 5, Marthe Sördal 4, Karen Knútsdóttir 4, Birna Berg Haraldsdóttir 4, Díana Ágústsdóttir 4, Ásta Birna Gunnarsdóttir 3, Sigurbjörg Jóhannsdóttir 2, María Karlsdóttir 2, Pavla Nevarilova 2.

Mörk FH: Birna Íris Helgadóttir 3, Hind Hannesdóttir 3, Margrét Ósk Aronsdóttir 3, Heiðdís Rún Guðmundsdóttir 2, Steinunn Snorradóttir 2, Berglind Ósk Björgvinsdóttir 2, Sigrún Gilsdóttir 1, Ingibjörg Pálmadóttir 1, Sigrún Jóhannsdóttir 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×