Þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun: Stúlkan lagðist á grasblett og grét Erla Hlynsdóttir skrifar 26. maí 2011 11:38 Sviðsett mynd úr safni
Þrítugur karlmaður, Grétar Torfi Gunnarsson, hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun. Grétar Torfi er fundinn sekur um að hafa nauðgað ungri konu í leggöng og endaþarm, neytt hana til að hafa við sig munnmök, og beitt hana öðru ofbeldi á meðan á nauðgun stóð. Hann var jafnframt dæmdur til að greiða brotaþola 1,2 milljón króna í miskabætur. Grétar Torfi neitaði alfarið sök. Hann sagðist hafa átt munnmök, samræði og endaþarmsmök við stúlkuna en talið hana verið þessu samþykk. Við skoðun á Neyðarmótttöku fyrir fórnarlömb nauðgana kom í ljós að stúlkan var með sprungu og roða í endaþarmi, marbletti á læri og rasskinn, eymsli yfir nefrót og í hnakka auk þess sem hár losnaði úr hársverði. Fyrir dómi bar maðurinn að harkaleg meðferð hans á konunni hafi verið „hluti af leiknum." Þá segir í lýsingu hans á málsatvikum: „Ákærði tók fram að stúlkan hefði að vísu ekki samþykkt sérstaklega þegar hann setti getnaðarlim sinn í endaþarm hennar, en hún hefði ekki sett sig upp á móti því." Stúlkan bar hins vegar að hún hefði sannarlega mótmælt. Samkvæmt framburði stúlkunnar kynntust þau á skemmtistað fyrr um nóttina og hafi hún greint frá því strax í upphafi samskipta þeirra að hún væri lesbía. Stúlkan og vinkona hennar fóru með manninum og vinum hans heim til mannsins síðar um nóttina. Nauðgunin átti sér stað í júní á síðasta ári. Eftir nauðgunina flúði stúlkan. „Hún hefði klætt sig í flýti, en skilið eitthvað af fötum sínum eftir í herberginu. Hún hefði yfirgefið íbúðina og ætlað heim til sín, en fundið fyrir svo miklum sársauka í endaþarmi að hún hefði lagst á grasblett og grátið," segir í lýsingu hennar á málsatvikum. Í málinu liggur fyrir vottorð sálfræðings þar sem kemur fram að nauðgunin hafi valdið stúlkunni mikilli vanlíðan, ljóst er að hún þarfnast langvarandi meðferðar vegna áfallastreituröskunar og er óvíst um bata. Grétar Torfi hefur ekki áður gerst sekur um refsiverða háttsemi. Dómararnir Ragnheiður Harðardóttir, Eggert Óskarsson og Sigríður Ólafsdóttir héraðsdómarar kváðu upp dóminn í Héraðsdómi Reykjavíkur
Mest lesið Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Erlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Ólafur Vignir píanóleikari látinn Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Innlent Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Fleiri fréttir Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Aukin skriðuhætta og breytt hlutverk kirkjunnar Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sóttu veikan ferðamann í éljagangi og fimm metra öldum Sjá meira