Styðja fatlaða vinkonu til ferðalaga Jón Hákon Halldórsson skrifar 26. maí 2011 15:25 Guðrún Jóna Jónsdóttir ásamt vinkonu sinni í Svíþjóð.
Vinir Guðrúnar Jónu Jónsdóttur eru um þessar mundir að safna fé fyrir hana þannig að henni gefist kostur á því að ferðast til útlanda. Guðrún Jóna, eða Gugga eins og hún er oft kölluð, varð fyrir líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur árið 1993. Þá var hún fimmtán ára gömul. Alla tíð síðan hefur hún verið mikið fötluð og bundin við hjólastól. Fyrir nokkrum árum tóku vinir hennar sig saman og hófu að safna til að gefa Guggu kost á að ferðast til útlanda. Slíkt er hvorki ódýrt né einfalt því Guðrún þarf tvo aðstoðarmenn á ferðalögum. Með mikilli elju og framlögum frá góðu fólki hefur tekist að láta draum Guggu um ferðalög rætast. „Ég gæti aldrei ferðast nema vegna þessa stuðnings. Þessar ferðir hafa verið mér ótrúlega mikilvægar og eftirminnilegar. Eftirminnilegasta ferðin var þegar ég sá Madonnu, uppáhalds söngkonuna mína, á tónleikum í Lundúnum fyrir tveimur árum. Það var alveg ótrúlegt. Ég var í svo miklu tilfinningasjokki að ég grét allan tímann af gleði. Í sumar hefur stefnan verið sett á Chicago til að fara á U2 tónleika. Það verður örugglega alveg frábært þó ég efist nú um að þeir toppi tilfinninguna að sjá Madonnu,“ segir Gugga vegna söfnunarinnar. Fyrirhugað ferðalag Guggu til Chicago verður það lengsta til þessa. Það kostar töluverða peninga að láta dæmið ganga upp og vinir Guggu hafa því sett upp sérstaka söfnunarsíðu fyrir ferðasjóð Guggu á Facebook. Þar er hægt að lýsa stuðningi við málefnið og einnig er tekið við framlögum, hversu smá sem þau eru, á söfnunarreikning Ferðasjóðs Guggu 515-14-405952 Kt. 520511-0910.
Mest lesið Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Innlent Tók á móti fyrstu F-16 þotunum Erlent Ólafur Vignir píanóleikari látinn Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Helgi er fundinn heill á húfi Innlent Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Innlent Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Innlent Fleiri fréttir Ofurölvi vistaður í fangaklefa Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Aukin skriðuhætta og breytt hlutverk kirkjunnar Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Kajakræðarar í hættu hífðir upp Fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga á Litla-Hrauni Gekk berserksgang og olli tjóni á þremur bifreiðum Ástand á Litla-Hrauni: Þrír fangaverðir slasaðir eftir átök við fanga Bíll alelda á Hellisheiði Sitja uppi með rifið tjald og engan næturstað í hífandi roki Bjóða óperumuni fala á menningarnótt í von um framhaldslíf Ber á því að ekið sé á sauðfé á Vesturlandi Sjálfstæðisflokkurinn í „meiriháttar vandræðum“ Sjá meira