Innlent

Vann 2 milljónir í lottósjálfsala

Miðinn var verslaður í lottósjálfsala á Akureyri.
Miðinn var verslaður í lottósjálfsala á Akureyri.
Konu á Akureyri brá heldur betur í brún þegar hún gerði sér grein fyrir því að lottóvinningur sem hún taldi fyrst hljóða upp á 2.000 krónur reyndist vera heilar 2 milljónir króna.

Starfsmaður Lottó var að kenna viðskiptavinum að nota lottósjálfsala í Bónus á Akureyri þegar konuna bar að garði þann 16. apríl síðastliðinn. Hún ákvað að prófa og með hjálp starfsmannsins verslaði hún sér einn 10 raða miða með Jóker.

Hún athugaði miðann hinsvegar ekkert fyrr en í fyrradag og komst þá að því að hún hafði unnið jókervinning en henni brá heldur betur í brún þegar hún gerði sér grein fyrir því að vinningurinn, sem hún taldi fyrst hljóða upp á 2.000 krónur, reyndist vera 2 milljóna króna virði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×