Innlent

Játaði ránið í útibúi Arionbanka

Karlmaður um tvítugt, sem gerði tilraun til að ræna útibú Arionbanka í Árbæjarhverfi í Reykjavík í gærkvöldi, og viðhafði ógnandi tilburði við starfsmenn, gaf sig fram við lögreglu í gærkvöldi og játaði á sig verknaðinn.

Hann gistir fangageymslur og verður yfirheyrður nánar í dag. Fjölmargar ábendingar bárust eftir að myndir frá vettvangi voru birtar á Fésbókarsíðu lögreglunnar og í fjölmiðlum.

Ekki liggur fyrir hvort hann átti sér vitorðsmann, eins og grunur lék á í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×