Innlent

Fimmtán starfsmenn Byko og Húsasmiðjunnar handteknir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Efnahagsbrotadeild ríkislögreglustjóra handtók í dag fimmtán stjórnendur og starfsmenn Byko hf. og Húsasmiðjunnar hf., vegna meint ólöglegs verðsamráðs. Mennirnir voru færðir til yfirheyrslu. Þá hefur einn starfsmaður verið boðaður til frekari yfirheyrslu. Aðgerðirnar nú eru framhald af húsleit í húsnæði Byko hf., Húsasmiðjunnar hf. og Úlfsins, sem fram fóru þann 8. mars síðastliðinn og yfirheyrslna í kjölfarið.

Til rannsóknar eru ætluð brot á banni samkeppnislaga við samráði keppinauta um m.a. verð, gerð tilboða og skiptingu markaða. Rannsókn efnahagsbrotadeildar beinist að ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna og grundvallast á kæru Samkeppniseftirlitsins, en þau brot sæta rannsókn lögreglu að undangenginni kæru stofnunarinnar.

Í tilkynningu kemur fram að samhliða rannsókn lögreglu á ætluðum brotum starfsmanna fyrirtækjanna hefur Samkeppniseftirlitið til rannsóknar hugsanleg brot hlutaðeigandi fyrirtækja á banni við ólögmætu samráði, en slík brot varða fyrirtæki m.a. stjórnvaldssektum. Aðgerðirnar eru framkvæmdar í samvinnu við Samkeppniseftirlitið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×