Innlent

Hraðakstur í Hvalfjarðargöngum

Mynd úr safni
Brot 6 ökumanna voru mynduð í Hvalfjarðargöngum í gær en fylgst var með ökutækjum sem var ekið í norðurátt. Á einni klukkustund, síðdegis, fóru 233 ökutæki þessa akstursleið og því óku fáir ökumenn, eða tæplega 3%, of hratt eða yfir afskiptahraða.

Meðalhraði hinna brotlegu var 84 km/klst en þarna er 70 km hámarkshraði. Sá sem hraðast ók mældist á 90.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×