Innlent

Stöðvuðu 16 ára pilt á stolnum bíl

Lögregla stöðvaði í nótt 16 ára pilt á bíl ömmu sinnar, sem hann hafði tekið ófrjálsri hendi. Þetta er í þriðja skipti á skömmum tíma sem pilturinn er stöðvaður á bíl og mun það að öllum líkindum tefja fyrir því að hann fái loks bílpróf.

Ung kona var líka stöðvuð og tekin úr umferð í miðborginni í nótt vegna ölvunaraksturs. Hún var réttindalaus eftir að hafa verið svift ökuréttindum fyrir skömmu, líka vegna ölvunaraksturs. Það mun svo tefja fyrir að hún fái ökuréttindi á ný.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×