Innlent

Metfjöldi í viðtölum hjá samtökum gegn kynferðisofbeldi

Erla Hlynsdóttir skrifar
Mynd úr safni
Aldrei hafa fleiri leitað til Aflsins, samtaka gegn kynferðis- og heimilisofbeldi á Norðurlandi, en á síðasta ári. Fjöldi einkaviðtala jókst frá árinu 2009 um 31,8% og voru þau alls 427 árið 2010. Einkaviðtöl sem flokkast sem símaviðtöl voru 63, en sími Aflsins er opinn allan sólarhringinn.

Fjöldi þeirra sem komu í sitt fyrsta viðtal hjá Aflinu á árinu 2010 voru 82. Þar af eru 48 konur, 8 karlmenn og 26 aðstandendur.

Þetta kemur fram í nýrri ársskýrslu Aflsins, systursamtökum Stígamóta á Norðurlandi.

Sæunn Guðmundsdóttir, starfskona Aflsins, segist vona að aukningin á fjölda þeirra sem leita til samtakanna sé sú að umræðan um kynferðisofbeldi sé að opnast, frekar en að kynferðisbrotum sé að fjölga. „Hinn er annað mál að við vitum að þetta er að aukast á ýmsan hátt með notkun netsins. Þá er skemmst að minnast nýlegra frétta um að menn tæli skólabörn í gegn um netið," segir hún.

Aflið tekur í viðtöl þá sem náð hafa 18 ára aldri en þeir sem eru yngri geta komið í eins konar eftirmeðferð eftir að dómur hefur gengið í málum þeirra. Þannig hafa börn niður í 12 ára komið í viðtöl til Aflsins eftir að vera tæld af eldri mönnum á netinu sem síðan brjóta á þeim kynferðislega.

Þjónusta Aflsins er þeim sem þangað leita að kostnaðarlausu. Aflið treystir því á styrki til að halda starfseminni gangandi. Á liðnum árum hefur gengið verr að fá þá vegna þrenginga í þjóðfélaginu.

Sæunn vekur athygli á að sama ár og árlegur styrkur ríkisins var lækkaður um 20%, úr 2 milljónum í 1,6 milljón árið 2008, þá var 92% aukning á fjölda viðtala. Því sé greinilegt að þörfin sé fyrir hendi.

Eins og staðan er nú er hins vegar stærsti hluti af starfi Aflsins inntur af hendi í sjálfboðavinnu, en eina launaða starfsmanninum var sagt upp um áramótin vegna fjárskorts.



Heimasíðu Aflsins má nálgast með því að smella hér.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×