60 milljóna króna styrkir til doktorsnema 19. maí 2011 09:00
Fimmtán doktorsnemar við Háskóla Íslands hljóta í dag styrk úr Háskólasjóði H/f Eimskipafélags íslands. Heildarupphæð styrkjanna er samtals 60 milljónir króna. Fimm verkefni hljóta styrk til þriggja ára, sex verkefni til tveggja ára og fjórir styrkir eru veittir til doktorsnema sem ljúka rannsóknum á næsta ári. Sex styrkþeganna koma erlendis frá til doktorsnáms við Háskóla Íslands. Verkefni styrkþeganna eru fjölbreytt og má þar nefna rannsókn á næringu ungbarna fyrstu mánuði ævinnar, athugun á ragnarökum í norrænni goðafræði og úttekt á eðli og áhrifum óblíðra náttúruafla á mannlegt samfélag. Þá má einnig benda á rannsókn á uppeldissýn foreldra og leit að virkum náttúruefnum í íslenskum plöntum sem gagnast geta í baráttunni við Alzheimer-sjúkdóminn. Háskólasjóður H/f Eimskipafélags Íslands var settur á laggirnar af Vestur-Íslendingum árið 1964 þegar þeir lögðu til hans hlutabréfaeign sína í Eimskipafélaginu. Hann var stofnaður til minningar um Vestur-Íslendinga og til að styðja stúdenta til náms við Háskóla Íslands. Sjóðurinn er í vörslu Landsbankans og hefur starfað í núverandi mynd frá árinu 2005. Þá voru gerðar veigamiklar breytingar á fyrirkomulagi sjóðsins með það að markmiði að veita styrki til stúdenta í rannsóknartengdu framhaldsnámi við Háskóla Íslands. Þetta er í fjórða skipti sem úthlutað er úr sjóðnum. Það var fyrst gert árið 2006 og síðan þá hefur á sjötta tug doktorsnema við háskólann hlotið styrk úr sjóðnum. Úthlutunin fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands klukkan þrjú.
Mest lesið Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Innlent Starmer heldur neyðarfund vegna óeirðanna Erlent Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Innlent Á bólakafi í Hólmsá Innlent Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Innlent Báru eld að miðstöð fyrir hælisleitendur Erlent Lýsa eftir Kolbeini Vopna Innlent Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Innlent Segir af sér og flýr land Erlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent Fleiri fréttir „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Lýsa eftir Kolbeini Vopna Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Helgin fór prýðilega fram í Eyjum Óánægja með ætlað niðurrif á sögulegu húsi á Húsavík Fimm hundruð í Herjólfshöll í nótt og óöld í Bangladess Starbucks kemur ekki til Íslands Ofurölvi vistaður í fangaklefa Ólafur Vignir píanóleikari látinn Á bólakafi í Hólmsá Ekkert tilkynnt kynferðisbrot og minna af fíkniefnum Talsverð rigning í kvöld en styttir upp á morgun Óveður um land allt og óeirðir í Bretlandi Hljóp til að bjarga lífi sínu undan fljúgandi brettum á brennunni Öllum sama um sóðaskap í Reykjavík Helgi er fundinn heill á húfi Séra Frank M. Halldórsson sóknarprestur látinn Aurskriðuhætta og allt að fjörutíu metrar á sekúndu í hviðum „Ég skammast mín ekkert fyrir að tala upp nýsköpun“ Þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út til aðstoðar við leitina Björgunarbátur ræstur út til leitar að Þjóðhátíðargesti Halda sínu striki þrátt fyrir veðrið Sérsveitin sat um hús í Mosfellsbæ í þrjá tíma Biskup og umhverfisráðherra í Sprengisandi Lögregla lýsir eftir Helga Laus úr haldi eftir hnífsstungu á Akureyri Kom úr sundi að brotnu tjaldinu Sjá meira