Skoðun

Hver er besti framhaldsskóli landsins?

Starfsfólk Verkmenntaskóla Austurlands skrifar
Þessari spurningu er varpað fram í auglýsingum frá tímaritinu Frjálsri verslun og vísað í grein um könnun Pawels Bartoszek um gæði framhaldsskóla á Íslandi. Við viljum setja alvarlega fyrirvara um þau vinnubrögð sem þar eru viðhöfð en einnig er fréttaflutningurinn af könnuninni mjög ámælisverður.

Þessi könnun flokkaði framhaldskóla í bestu og verstu skóla landsins og segir Pawel að nemendur geti notað þessa könnun þegar þeir velja sér framhaldsskóla. Aðferðarfræðin sem Pawel beitir er meingölluð og hafa skólameistarar ýmissa framhaldsskóla sem og menntamálaráðherra dregið stórlega í efa hversu góður mælikvarði á gæði skólastarfs þessi könnun sé. Við í Verkmenntaskóla Austurlands getum ekki setið undir því sem fullyrt er í greininni um gæði skólans okkar. Við vitum að hann er góður skóli og er okkur í lófa lagið að búa til mælikvarða sem sýna að hann sé jafnvel sá besti á landinu.

Af þeim sautján þáttum sem Pawel notar sem mælikvarða á gæði skólastarfs snúast fimmtán um hinar ýmsu keppnir sem aðeins örfáir skólar á landinu taka þátt í. Þetta eru t.d. franska ljóðakeppnin „Allons en France", Morfís, Enska ræðukeppnin og Forritunarkeppni framhaldsskólanna. Greinarnar sem keppt er í eru ekki kenndar í öllum framhaldsskólum en auk þess getur verið talsverður kostnaður að taka þátt í þeim fyrir lítinn skóla sem staðsettur er fjarri höfuðborgarsvæðinu. Þar að auki er árangur einstakra nemenda í svona keppnum vafasamur mælikvarði á gæði skólastarfs.

Í Verkmenntaskóla Austurlands er mikil áhersla lögð á að sinna einstaklingsbundnum þörfum nemenda og er stærð skólans þar mikill kostur. Við veljum ekki nemendur inn í skólann eftir einkunnum úr grunnskóla því samkvæmt lögum eiga allir rétt á framhaldsskólamenntun.  Í skólanum okkar er mjög breiður hópur nemenda. Námsframboðið hér er  e.t.v. mun fjölbreyttara en hjá skólunum sem skora hæst í umræddri könnun. Hér er boðið upp bóknámsbrautir þar sem nemendur geta lokið stúdentsprófi. Þá erum við með iðnnám, sjúkraliðabraut, leik- og grunnskólabraut,  iðnmeistaranám og margt fleira.  Auk þess er starfsbraut fyrir nemendur sem ekki geta stundað nám á hinum hefðbundnu brautum. Nemendur okkar sem eru með námserfiðleika og félagsleg vandamál þurfa jafn mikið á framhaldsskólamenntun að halda og allir afburðanemendurnir okkar, enda hafa þeir sama rétt samkvæmt lögum.

Í Verkmenntaskóla Austurlands er starfrækt íþróttaakademía og í skólanum er mjög öflugt leikfélag, Leikfélagið Djúpið, sem setur upp metnaðarfullar sýningar á hverju ári.

Við fögnum allri umræðu um gæði skólastarfs og náms í framhaldsskólum en sú umræða þarf að vera sanngjörn og málefnaleg. Við fullyrðum að Verkmenntaskóli Austurlandser góður skóli þar sem einstaklingurinn nýtur sín.

Starfsfólk Verkmenntaskóla Austurlands




Skoðun

Skoðun

Ole Anton Bieltvedt skrifar

Sjá meira


×