Erlent

Eltihrellir Halle Berry settur í bann

Mynd/Cover Media
Óskarsverðlaunaleikkonan Halle Berry hefur fengið nálgunarbann á karlmann sem virðist hafa þróað með sér sérstakt dálæti á leikkonunni. Á undanförnum dögum hefur hann ítrekað mætt fyrir utan heimili hennar í Hollywood, bankað á dyrnar og farið inn í garð þrátt fyrir öryggisgæslu. Maðurinn sem 27 ára var í framhaldinu handtekinn og færður í fangaklefa.

Berry segist ekki þekkja manninn og að hún vilji ekki eiga í neinum samskiptum við hann. Maðurinn má ekki koma að heimili leikkonunar auk þess sem hann verður að halda sig í um 50 metra fjarlægð frá henni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×