Innlent

Ekkert gefið eftir þótt ánægjan sé í fyrirrúmi

Í toppbaráttunni Bragi Halldórsson hefur staðið sig vel það sem af er Norðurlandamóti öldunga í skák. Hann er í toppbaráttunni ásamt mörgum sterkum skákmönnum, til að mynda Friðriki Ólafssyni og Heikki Westerinen, sem hefur unnið þetta mót í síðustu þrjú skipti. Fréttablaðið/Anton
Í toppbaráttunni Bragi Halldórsson hefur staðið sig vel það sem af er Norðurlandamóti öldunga í skák. Hann er í toppbaráttunni ásamt mörgum sterkum skákmönnum, til að mynda Friðriki Ólafssyni og Heikki Westerinen, sem hefur unnið þetta mót í síðustu þrjú skipti. Fréttablaðið/Anton
Kominn aftur til keppni Stórmeistarinn Friðrik Ólafsson, fyrrverandi formaður Alþjóðaskáksambandsins, er meðal keppenda.
„Hér er alls ekkert gefið eftir. Síður en svo,“ segir Bragi Halldórsson, einn af þátttakendum á Norðurlandamóti öldunga sem fer fram þessa dagana.

„Hér njóta menn leiksins og baráttunnar og það er í fyrirrúmi hjá flestum,“ bætir Bragi við. „Úrslitin eru því ekki aðalatriðið, heldur frekar ánægjan af leiknum.“

Bragi hefur verið í forystu nær allt mótið en tapaði fyrir Nils Åke Malmdin í sjöttu umferð, sem fór fram í gær, og féll niður í sjötta sætið.

Meðal þeirra 52ja keppenda sem eru mættir til leiks að þessu sinni er Finninn Heikki Westerinen, sem hefur unnið þetta mót síðustu þrjú skipti, en keppt hefur verið annað hvert ár frá árinu 1999.

„Hér eru margir sterkir skákmenn,“ segir Bragi. „Westerinen hefur til dæmis teflt oftar en nokkur annar á Ólympíumóti og síðan er ánægjulegt að sjá Friðrik [Ólafsson stórmeistara] aftur í keppni. Hann var örlítið ryðgaður framan af en er kominn í gang núna,“ segir Bragi.

Eftir úrslitin í sjöttu umferð eru finnski stórmeistarinn Yrjö Rantanen og Daninn Jørn Sloth í forystu með fimm vinninga. Friðrik vann í gær og er í þriðja til fimmta sæti ásamt Westerinen og Malmdin með fjóra og hálfan vinning.

Mótið fer fram í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur í Faxafeni. Þrjár umferðir eru eftir og hefst sjöunda umferð í dag klukkan 14. Mótinu lýkur á sunnudag. Þá kemur í ljós hvort Westerinen sigrar í fjórða sinn í röð eða hvort titillinn fellur einhverjum öðrum í skaut. Jafnvel gæti Íslendingur unnið í fyrsta sinn.

thorgils@frettabladid.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×