Innlent

Vigdís Finnbogadóttir verðlaunuð

Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannhöfn í dag. Mynd/Egill Bjarki.
Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannhöfn í dag. Mynd/Egill Bjarki.
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseta Íslands, hlaut í dag verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta fyrir árið 2011. Verðlaunin hlýtur hún fyrir að efla og styrkja vináttu milli Íslands og Danmerkur sem ötull talsmaður menningarsamskipta þjóðanna. Forusta hennar í stjórn sjóðsins Den Nordatlantiske Brygge tryggði endurbyggingu „Bryggjunnar“ þar sem síðan hefur verið haldið á loft menningu Íslands í Kaupmannahöfn, líkt og það er orðað í tilkynningu.  

Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannhöfn í dag, kvenréttindadaginn 19. júní 2011. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns og halda á loft verkum hans og hugsjónum. Stjórn húss Jóns Sigurðssonar hefur umsjón með hátíðinni með fulltingi forseta Alþingis og forsætisnefndar.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flutti hátíðarræðu við þetta tilefni og Sólveig Pétursdóttir, formaður undirbúningsnefndar afmælis Jóns Sigurðssonar, kynnti margmiðlunarsýningu sem gerð er í tilefni 200 ára afmælisársins

Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, afhenti Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta, en Alþingi veitir verðlaunin í minningu starfa Jóns forseta í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns. Þessi verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála.

Verðlaunin hafa áður hlotið:

2010: Søren Langvad byggingarverkfræðingur.

2009: Erik Skyum-Nielsen bókmenntafræðingur.

2008: Guðjón Friðriksson sagnfræðingur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×