Innlent

Þétt umferð til Reykjavíkur

Bíll við bíl í Mosfellsbæ á fimmta tímanum í dag.
Bíll við bíl í Mosfellsbæ á fimmta tímanum í dag. Mynd/Sigurjón
Umferð til höfuðborgarinnar tók að þyngjast þegar leið á daginn og má áfram búast við talsverðri umferð um helstu umferðaræðar til og frá höfuðborgarsvæðinu, að sögn lögreglu. Margir virðist hafa notað tækifærið þar sem 17. júní bar í ár upp á föstudegi og farið út úr bænum á fimmtudaginn. Umferð í gegnum umdæmi lögreglunnar á Selfossi hefur dreifst ágætlega í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×