Innlent

Hagfræðingarnir funda með þingnefnd eftir helgi

Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG og formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar.
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG og formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar. Mynd/Vilhelm
„Það er verið að kanna hvenær þeir aðilar sem þarna eiga í hlut komast,“ segir Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG og formaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar. Hún á von á því að nefndin komi saman á þriðjudaginn til að ræða um skýrslu hagfræðinga um frumvörp Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, um breytingar á stjórn fiskveiða. Verið er að athuga hvort og þá hvenær hagfræðingarnar komast og af þeim sökum hefur ekki verið boðað formlega til fundarins, að sögn Lilju.

Sérfræðingahópur á vegum Jóns sem hann fól að fara yfir frumvörp hans um stjórn fiskveiða, gerir margar og alvarlegar athugasemdir við frumvörpin. Nái þau fram að ganga vinni þau gegn hagræðingu í greininni, geri nýliðun erfiðari og fleira.

Það voru þingmenn stjórnarandstöðunnar í sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd sem óskuðu eftir því að nefndin kæmi saman til fundar og að hagfræðingarnar yrðu þar sérstakir gestir. Lilja segist ekki hafa séð ástæðu til annars en að verða við beiðninni.

„Það var reyndar samkomulag að ósk stjórnarandstöðunnar að það færi ekki fram nein efnisleg umræða um stóra fiskiveiðistjórnunarfrumvarpið í sumar eða á þinginu í september. Það kom því á óvart að þessi ósk kom fram en ég áskil mér fullan rétt til að kalla þá til fleiri aðila fyrst þingmenn stjórnarandstöðunnar í nefndinni opnuðu á málið með þessum hætti,“ segir Lilja.

Sammála Svandísi

Fyrr í dag sagði Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, að breytingar á kvótakerfinu eigi ekki einungis að skoða út frá hagfræði því einnig verði að huga að samfélagslegum breytingum. Lilja tekur undir með Svandísi og segir að skoða verði þessi mál í víðu samhengi. Skýrsla hagfræðinganna sé eitt púslið í allri heildarmyndinni sem þurfi að skoða.

„Hagfræðin stendur fyrir sinn hluta og svo koma aðrir þættir eins og samfélagslegir, byggðarlegir og fleiri sem taka þarf inn í myndina,“ segir Lilja.


Tengdar fréttir

Einar vill að Jón rífi kvótafrumvörpin

Fyrrverandi sjávarútvegsráðherra segir að núverandi ráðherra ætti að fara niður í ráðuneyti sitt og rífa frumvörpin um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða, nú þegar sérfræðingar á hans vegum hafa gagnrýnt frumvörpin harðlega.

Vilja fund um skýrslu sérfræðinganna

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks- og Framsóknarflokks í sjávarútvegs- og landbúnarðarnefnd Alþingis hafa óskað eftir því að boðað verði til fundar í nefndinni vegna skýrslu hagfræðinga um frumvörp sjávarútvegsráðherra um breytingar á stjórn fiskveiða. Þeir vilja að höfundar skýrslu sem kynnt var í síðustu viku verði boðaðir á fundinn.

Breytingar á kvótakerfinu má ekki bara skoða út frá hagfræði

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, segir að breytingar á kvótakerfinu eigi ekki einungis að skoða út frá hagfræði. Einnig verði að huga að samfélagslegum breytingum. Hún hefur fulla trú á að umtalsverðar breytingar verði gerðar á kvótakerfinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×