Viðskipti innlent

Flest félögin ekki í samkeppni

Gunnar Andersen Fjármálaeftirlitið sagði frá því í svari við fyrirspurn Félags atvinnurekenda að 137 fyrirtæki í óskyldum rekstri væru í fangi bankanna.
Gunnar Andersen Fjármálaeftirlitið sagði frá því í svari við fyrirspurn Félags atvinnurekenda að 137 fyrirtæki í óskyldum rekstri væru í fangi bankanna.
Þorri þeirra 137 félaga sem eru í höndum íslenskra fjármálafyrirtækja liggur hjá stóru viðskiptabönkunum þremur. Landsbankinn á hlut í flestum félögum. Fréttablaðið greinir frá því um hvaða félög er að ræða.

Alls eru 137 félög í óskyldri starfsemi í eigu íslenskra fjármálafyrirtækja í dag. Þetta kom fram í skýrslu sem fjármálafyrirtækin skiluðu inn til Fjármálaeftirlitsins (FME) fyrr á þessu ári. Rúm 80% þessara félaga liggja hjá stóru viðskiptabönkunum þremur; Landsbanka, Arion banka og Íslandsbanka, samkvæmt upplýsingum sem þeir hafa sent frá sér í þessari viku. Félögin eru af margvíslegum toga og flest þeirra eru ekki rekstrarfélög sem starfa í beinni samkeppni við önnur fyrirtæki. Fréttablaðið fer yfir hvaða félög þetta eru hér fyrir neðan.

Samkvæmt lögum mega bankar einungis eiga fyrirtæki í óskyldri starfsemi í 12 mánuði án þess að leita eftir undanþágu vegna þess eignarhalds hjá FME. Dæmi eru um að bankar, eða dótturfélög þeirra, hafi átt fyrirtæki sem keppa á samkeppnismarkaði í meira en 30 mánuði. Þau tímamörk voru sett inn í lög um fjármálafyrirtæki í fyrrasumar. Frá og með 25. júní 2011 hafa bankar þurft að sækja um undanþágu til að eiga fyrirtæki í lengri tíma en ár. FME hefur haft virkt eftirlit með því að þessu sé hlýtt og Gunnar Andersen, forstjóri eftirlitsins, sagði í Fréttablaðinu á miðvikudag að það væri tilbúið að beita viðurlögum gegn bönkum sem draga að selja fyrirtæki í óskyldum rekstri.

Fréttablaðið greindi frá því í lok síðustu viku að bankarnir hefðu sótt um 68 undanþágur frá þessum lögum. Þær voru allar samþykktar en FME hefur ekki viljað gefa upp hversu langir frestir hafa verið veittir né um hvaða félög er að ræða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×