Innlent

Í farbanni til 1. september - rannsókn gengur vel

Barnið fannst í ruslageymslu á Hótel Frón en konan var starfsmaður þar.
Barnið fannst í ruslageymslu á Hótel Frón en konan var starfsmaður þar. Mynd/Stöð2
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur úrskurðað konu, sem skildi nýfætt sveinbarn eftir í ruslageymslu við Hótel Frón í síðasta mánuði, í farbann til 1. september næstkomandi.

Rannsókn á málinu gengur vel og er búist við að það verði sent til ríkissaksóknara í þessum mánuði. Samkvæmt heimildum fréttastofu er þó töluverð tæknivinna eftir.

Greint var frá því í fréttum Stöðvar 2 að konan hafi veitt barninu áverka í andliti með eggvopni áður en hún kom því fyrir. Búið var að skera barnið sitthvoru megin við munnvikin þegar það fannst.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu liggur dánarorsök þó ekki enn fyrir en barnið var á lífi og heilbrigt þegar það fæddist og er konan talin bera ábyrgð á andláti þess.

Móðirin og fyrrverandi sambýlismaður hennar voru í skýrslutökum vegna málsins en hún er ein með réttarstöðu sakbornings í málinu.


Tengdar fréttir

Barnslát: Móðirin laus úr gæsluvarðhaldi

Litháíska konan, sem ól barn við Hótel Frón um helgina en skildi við það í ruslagámi stuttu seinna, hefur verið látin laus úr gæsluvarðhaldi. Þetta staðfestir verjandi konunnar í samtali við fréttastofu. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði konuna í gæsluvarðhald á sunnudaginn, eftir að barnið fannst látið í ruslagámnum. Hæstiréttur felldi úrskurðinn hins vegar úr gildi.

Barnslát: Móðirin flutt á Litla Hraun

Móðir kornabarnsins, sem fannst látið við hótel í Reykjavík um helgina, hefur verið flutt í einangrun á Litla Hraun. Konan, sem er rétt rúmlega tvítug, var lögð inn á sjúkrahús fyrst um sinn en var færð til yfirheyrslu hjá lögreglu síðdegis og í framhaldinu flutt á Litla-Hraun, eins og áður sagði. Rannsókn lögreglu á málinu heldur áfram.

Barnslát: Búið að yfirheyra alla nema móðurina

Yfirheyrslum lögreglu yfir samstarfsfólki og aðstandendum konunnar, sem grunuð er um að hafa komið nýfæddu barni sínu fyrir í ruslagámi þar sem það fannst látið, er að mestu lokið.

Í farbanni til 4. ágúst - barnið fæddist lifandi og heilbrigt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segir að rannsókn á voveiflegu láti barns, sem fannst í sorpgeymslu við hótel í Reykjavík síðdegis síðastliðinn laugardag, hafi miðað áfram. Í tilkynningu segir að í ljósi þess sem nú liggur fyrir þykja ekki lengur fyrir hendi þau skilyrði sem voru grundvöllur gæsluvarðhaldsúrskurðs héraðsdóms. Hæstiréttur felldi úrskurðinn úr gildi í dag.

Barnslát: Konan enn á sjúkrahúsi

Barnið sem fannst látið í ruslagámi við Hótel Frón á Laugardaginn verður krufið í dag. Móðir þess er enn á sjúkrahúsi, en hún var úrskurðuð í gæsluvarðhald í gær.

Barnslát: Móðirin ekki enn yfirheyrð

Konan sem er grunuð um að hafa skilið nýfætt barn sitt eftir í ruslagámi við Hótel Frón hefur enn ekki verið yfirheyrð. Hún verður væntanlega ekki útskrifuð af sjúkrahúsi fyrr eftir einn til tvo daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×