Innlent

Sex ára drengur féll af baki og dróst með hestinum

Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Myndin er úr safni og tengist ekki fréttinni beint.
Sex ára drengur slasaðist er hann féll af hesti í Hrunamannahreppi í gær. Hestur sem hann var á trylltist og drengurinn féll af baki. Hann festist í ístaðinu og dróst spölkorn með hestinum. Drengurinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala. Grunur er um að hann hafi hlotið innvortis meiðsli.

Ungur maður féll svo af torfæruhjóli í Gnúpverjahreppi aðfaranótt laugardags. Hann var fluttur á slysadeild Landspítala.  Maðurinn er grunaður um að hafa verið undir áfengisáhrifum og var ekki með hjálm né annan hlífðarbúnað.

Um helgina voru fjórir ökumenn kærðir fyrir ölvunarakstur og 16 fyrir hraðakstur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×