Innlent

Matarskortur blasir við í Kattholti

Anna Kristine sendir neyðarkall til kattavina
Anna Kristine sendir neyðarkall til kattavina Mynd: Anton Brink
„Oft hefur rekstur Kattholts verið erfiður, en sjaldan sem nú. Staðan er svo slæm að varla er til fóður fyrir óskilakisurnar og annað eftir því," segir Anna Kristine Magnúsdóttir, nýr formaður Kattavinafélags Íslands.

Vegna þessarar bágu fjárhagsstöðu sendir Anna Kristine út neyðarkall til kattavina og óskar hún annað hvort eftir fóðri eða fjárstyrk.

Sem stendur eru um 60 óskilakettir í Kattholti og maturinn brátt uppurinn.

Hægt er að koma með fóður í Kattholt, Stangarhyl 2 í Árbæ.

Þá er styrktarreikningur Kattholts 0113-26-000767, kennitala 550378-0199.

Sjá vef Kattholts.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×