Innlent

Engar líkamsárásir á Kótelettuhátíðinni

Lögreglan á Selfossi. Myndin er úr safni.
Lögreglan á Selfossi. Myndin er úr safni.
Engar líkamsárásir hafa verið kærðar til lögreglunnar á Selfossi eftir helgina, en þar fór fram Kótelettuhátíðin.

Lögreglan er hæstánægð með gesti hátíðarinnar sem og gæslu í tengslum við skemmtanahald á Selfossi, sem var til fyrirmyndar að mati lögreglu.

Afskipti voru höfð af nokkrum ölvuðum einstaklingum sem létu til sín taka á dansleik við Hvítahúsið án sérstakra afleiðinga.

Umferð var mjög mikil í Árnessýslu um helgina.  Heilt yfir gekk umferð greiðlega og án slysa. Mikill erill var þó hjá lögreglunni enda víðfeðmt svæði sem hún þarf að sinna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×