Innlent

Kirkjuþing krest þess ekki að neinn víki - ályktunin í heild sinni

Séra Karl Sigurbjörnsson á kirkjuþinginu í dag
Séra Karl Sigurbjörnsson á kirkjuþinginu í dag Mynd GVA
Kirkjuþing hefur samþykkt ályktun þar sem þingið harmar að viðbrögð og starfshættir þjóðkirkjunnar vegna ásakana um kynferðisbrot innan hennar hafi ekki alltaf verið sem skyldi.

Kirkjuþing biður þá þolendur kynferðisbrota sem hafa verið órétti beittir í samskiptum við þjóna kirkjunnar og lykilstofnanir hennar fyrirgefningar.

Í ályktuninni er ekki farið fram á að neinn víki vegna mistaka sem gerð innan kirkjunnar voru þegar nokkrar konur stigu fram og sökuðu séra Ólaf Skúlason um kynferðislega áreitni.

Ályktunin var samþykkt samhljóða.

Hún er hér í heild sinni:

Aukakirkjuþing 2011 þakkar ítarlega og vel unna skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings um viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni biskupi um kynferðisbrot. Telur kirkjuþing mikinn feng að skýrslu rannsóknarnefndar og ótvírætt að niðurstöður hennar eru mikilvægt veganesti til að bæta starfshætti og skipulag þjóðkirkjunnar vegna ásakana um kynferðisbrot innan hennar eftir því sem nauðsynlegt er og byggja upp traust og trúnað innan kirkjunnar og gagnvart samfélaginu.

Kirkjuþing harmar að viðbrögð og starfshættir þjóðkirkjunnar vegna ásakana um kynferðisbrot innan hennar hafi ekki alltaf verið sem skyldi. Kirkjuþing biður þá þolendur kynferðisbrota sem hafa verið órétti beittir í samskiptum við þjóna kirkjunnar og lykilstofnanir hennar fyrirgefningar.

Kirkjuþing ætlast til þess að á málum sem varða ofbeldi verði ávallt tekið af fullri virðingu, sanngirni og skilningi sem er í samhljómi við fagnaðarerindi kristinnar trúar. Kirkjuþing hvetur til þess að samstarfs verði leitað við málsaðila og fagfólk sem þekkingu hefur á því hvernig vinna skal úr kynferðisbrotamálum.

Kirkjuþing minnir á að frá árinu 1998 hafa verið gerðar ýmsar mikilvægar úrbætur til að draga úr líkum á að kynferðisofbeldi eigi sér stað innan vébanda kirkjunnar og stuðla að því að þolendur fái viðeigandi stuðning. Þar varðar mestu stofnun fagráðs og starfsreglur um meðferð kynferðisbrota innan þjóðkirkjunnar. Engu að síður er mikilvægt að horfast í augu við það sem úrskeiðis hefur farið. Brýnt er að áfram verði haldið á þeirri braut að skerpa og móta frekari verklagsreglur vegna ásakana um kynferðisbrot í því skyni að þjóðkirkjan verði jafnan vel í stakk búin til að takast á við kynferðisofbeldi og bregðist við því af öryggi og festu. Þjóðkirkjan vill tileinka sér fyrirmyndarvinnubrögð og leiðir til forvarna eins og bent er á í skýrslur rannsóknarnefndar kirkjuþings. Kirkjunni ber að vera skjól og sýna stuðning öllum þeim sem hafa orðið fyrir ofbeldi af hvaða tagi sem er.

Kirkjuþing ályktar að kjósa skuli fimm manna nefnd úr hópi kirkjuþingsfulltrúa til að undirbúa frekari úrbætur á þessu sviði fyrir komandi kirkjuþing að hausti. Nefndin skal hafa sérstaka hliðsjón af þeim tillögum sem fram eru settar í skýrslu rannsóknarnefndar kirkjuþings og leita sér jafnframt sérfræðilegrar aðstoðar eftir því sem þurfa þykir.




Tengdar fréttir

Sér Ólaf í Karli

Ólöf Pitt Jónsdóttir, eitt fórnarlamba Ólafs Skúlasonar, segist sjá Ólaf í Karli Sigurbjörnssyni. Hún segir Karl ekki tala af einlægni í biskupsmálinu svokallaða. Ólöf vill að Karl láti nú þegar af embætti biskups.

Biskup mættur á kirkjuþing

Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, mun í fyrsta sinn ræða um rannsóknarskýrslu kirkjuþings á þinginu sem hefst nú klukkan níu. Fyrst á dagskránni er helgistund, síðan sér Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, um forlega setningu þingsins. Því næst flytur forsætisnefnd þingsins tillögu til þingsályktunar um niðurstöðu rannsóknarnefndarinnar. Kirkjuþingið fer fram í Grensáskirkju og er eiginkona séra Karls meðal gesta. Eins og komið hefur fram hafa tveir fulltrúar sagt sig frá þingsetu, annars vegar séra Baldur Kristjánsson sem starfaði náið með séra Ólafi Skúlasyni í biskupstíð hans, og síðan sonur séra Ólafs, séra Skúli Sigurður Ólafsson, vegna fjölskyldutengsla. Nokkur óánægja hefur verið meðal presta um að séra Karl hafi ekki sagt sig frá þingsetu, en þar verður tekin ákvörðun um viðbrögð við skýrslunni. Þingið er öllum opið.

"Biskup Íslands þarf að segja af sér" af umhyggju fyrir kirkjunni

"Biskup Íslands þarf að segja af sér og undirstrika þannig umhyggju fyrir kirkju þeirri sem hann hann þjónar, kirkju sem er biðjandi, boðandi og þjónandi." Þetta segir séra Sigríður Guðmarsdóttir, sóknarprestur í Grafarholtsprestakalli. "Biskup Íslands þarf að kannast við það, að kirkjunni kemur betur að annar taki við lyklavaldi hans. Eftir því sem hann situr lengur í embætti verður skaði kirkjunnar meiri og sárari og tiltrú fólksins á kirkjunni dvínar," segir hún. Séra Sigríður hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna niðurstöðu rannsóknarnefndar kirkjuþings, en skýrsla nefndarinnar er til umræðu á kirkjuþingi sem hófst í morgun. Skýrslan fjallaði um viðbrögð kirkjunnar við ásökunum nokkurra kvenna sem sögðu séra Ólaf Skúlason, þáverandi biskup Íslands, hafa áreitt sig kynferðislega. Í yfirlýsingunni segir séra Sigríður að í þessu erfiða máli þar sem prestar, prófastar og biskup hafa gert sig sek um alvarleg mistök, þöggunartilburði og vanrækslu í starfi reyni á kirkjuaga. Biskup Íslands hefur yfirumsjón með kirkjuaga innan þjóðkirkjunnar. "Biskup Íslands brást í biskupsmálinu og brot hans eru á sviði sálgæslu, þess sviðs sem myndar grunn vígðrar þjónustu og trúverðugleika þeirrar þjónustu. Hann er tilsjónarmaður prestanna, en getur á engan hátt talist heppilegur aðili til að aga þá aðila sem hafa gerst sekir um mistök, vanrækslu og þöggun. Eftir höfðinu dansa limirnir. Trú almennings á umhyggju og fagleg vinnubrögð hinnar vígðu þjónustu er komin undir því að siðbót sálgæslunnar nái til allra stiga og þátta kirkjuvaldsins,“ segir í yfirlýsingu Sigríðar.

Biskup rýfur þögnina

Karl Sigurbjörnsson, biskup, tjáir sig á eftir í fyrsta sinn um skýrslu rannsóknarnefndar þjóðkirkjunnar þar sem farið er fyrir biskupsmálið svokallaða og viðbrögð kirkjunnar tilgreind. Karl mun ávarpa kirkjuþing en það verður sett klukkan níu í Grensáskirkju.

Séra Karl situr áfram - þykir leitt að hafa brugðist "væntingum"

Séra Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, ætlar ekki á kirkjuþingi að ræða um einstök mál sem rannsóknarnefnd kirkjuþings setur út á. Samkvæmt skýrslu nefndarinnar gerði séra Karl margs konar mistök þegar séra Ólafur Skúlason, fyrrverandi biskup, var sakaður um kynferðislega áreitni. Séra Karl endurtók fyrri afsökunarbeiðni til þeirra kvenna sem séra Ólafur áreitti, og sagði að sér þætti leitt að hann hefði "brugðist væntingum þeirra." Þetta kom fram í ræðu séra Karls á kirkjuþingi fyrir stundu. Í ræðunni sagði hann ekkert um að víkja af kirkjuþingi þar sem ákvörðun verður tekin um viðbrögð kirkjunnar við skýrslunni, og talaði hann heldur ekkert um að víkja sem biskup. Tveir prestar viku sæti af kirkjuþingi vegna tengsla við séra Ólaf, en séra Karl vann náið með honum þegar ásakanir komu upp. Nokkrir prestar hafa þegar stigið fram og sagt að þeim fyndist ekki annað hægt en að séra Karl víki af kirkjuþingi. Aðrir hafa viðrað þá skoðun að honum sé ekki lengur sætt sem biskup vegna þeirra mistaka sem hann gerði í máli Ólafs. Í ræðunni sagði séra Karl að kynferðisbrot yrðu ekki liðin innan kirkjunnar. "Við viljum læra af mistökum," sagði hann. Hann þakkaði fulltrúum í rannsóknarnefndinni fyrir skýrsluna og sagði hana gagnast kirkjunni vel í sjálfskoðun. Séra Karl sagðist aldrei hafa haft uppi ásetning um að þagga niður ásakanir á hendur séra Ólafi um kynferðislega áreitni. "Okkar besta er oft ekki nóg," sagði hann um viðbrögðin á sínum tíma. Þá sagði séra Karl að "mörg okkar" hefðu ekki verið undir það búin að "slíkir hlutir gætu gerst." Hann sagði að "við" hefðum reynt að gera rétt og vildi óska að "okkur" hefði tekist betur upp. Að sögn Karls var ekki auðvelt að sitja frammi fyrir rannsóknarnefndinni og ræða um liðna atburði. "Ég hef oft staðið frammi fyrir rannsóknarnefnd eigin samvisku," sagði hann og að vegna þess hafi hann átt andvökunætur. Þingsályktunartillaga kirkjuþings var lögð fram áður en séra Karl tók til máls, og þar var lagt til að konurnar sem séra Ólafur áreitti yrðu beðnar afsökunar. Tók séra Karl undir það. Þá sagði séra Karl að honum fyndist kirkjan almennt of svifasein í að takast á við atburði sem þessa, og að móta þurfi sterkari stefnu. Ekki er ljóst hvort séra Karl ræðir við fjölmiðlafólk á kirkjuþinginu eða eftir það. Á dagskrá þingsins er nú að vinna frekar með viðbrögð þess við skýrslunni.

Orð gegn orði um yfirlýsinguna

Þjóðkirkjan Rannsóknarnefnd kirkjuþings telur sig ekki geta skorið úr um það sem fram fór á fundi Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur með þeim Karli Sigurbjörnssyni, núverandi biskupi, og Hjálmari Jónssyni, núverandi dómkirkjupresti, í Hallgrímskirkju þann 3. mars 1996 sökum þess að orð standi þar gegn orði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×