Innlent

Náist ekki sátt fyrir 20. júní fara flugvirkjar í verkfall í þrjá daga

Flugvél Icelandair
Flugvél Icelandair Mynd/Valgarður
„Menn eru bjartsýnir og eru að nálgast hvorn annan," segir Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands. Sáttafundur í kjaradeilu félagsins og Icelandair hjá ríkissáttasemjara lauk í dag en boðað hefur verið aftur til fundar á fimmtudaginn. Hann segir að aðilar þokist í rétta átt og ekki sé búið að slá neitt út af borðinu hjá hvorugum aðilanum.

Boðað hefur verið til allsherjarvinnustöðvunar á miðnætti þann 20. júní næstkomandi og náist ekki sáttir fyrir þann tíma munu flugvirkjar fara í verkfall í þrjá sólarhringa. Í síðustu viku fóru þeir í verkfall frá klukkan sex til tíu í þrjá daga og seinkunn varð á flugi Icelandair. Óskar vonast þó til að ekki þurfi að grípa til þeirra aðgerða. „Menn eru bara að tala saman og ég á ekki von á því að það komi til þessa verkfalls þann 20. júní," segir Óskar bjartsýnn.

Á vef Flugvirkjafélagsins segir að undanfarin ár hafi það færst mjög í aukana að íslenskir flugvirkjar ráði sig til starfa erlendis þar sem launakjör eru mun betri en á Íslandi.

„Gengi íslensku krónunnar hefur spilað þar stórt hlutverk og efnahagur landsins ekki haldið mönnum frá því að flytja af landi brott. Þessi þróun er slæm fyrir alla, menn yfirgefa íslenskt skattaumhverfi og skila sínu í öðrum löndum og vinnuveitendur standa eftir með vandamál sem fer sífellt stækkandi. Í dag er ekkert atvinnuleysi hjá flugvirkjum á Íslandi og einnig er það raunin um alla Evrópu, því er það skiljanlegt að menn sæki þangað sem kaup og kjör eru betri," segir ennfremur á vef félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×