Innlent

Ákærður fyrir vopnalagabrot og fyrir að hóta lögreglumönnum

Maðurinn var staddur í miðborginni þegar atvikið átti sér stað.
Maðurinn var staddur í miðborginni þegar atvikið átti sér stað.
Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa hótað ítrekað tveimur lögreglumönnum lífláti og líkamsmeiðingum en hann var þá vopnaður hnífi fyrir utan skemmtistað í miðborginni í desember á síðasta ári. Hann er einnig ákærður fyrir að hafa borið hnífinn á almannafæri.

Að auki er maðurinn ákærður fyrir að aka undir áhrifum vímuefna. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×