Lífið

Konunglegt brúðkaup á tveimur stöðvum

Kate og Vilhjálmur ganga í það heilaga 29. apríl.
Kate og Vilhjálmur ganga í það heilaga 29. apríl.
„Jú, ég er búin að fallast á að lýsa þessu fyrir Stöð 2. Við erum ekki búin að ákveða öll smáatriði en þetta verður örugglega mjög skemmtilegt," segir Hildur Helga Sigurðardóttir blaðamaður.

Hildur verður í beinni útsendingu ásamt völdum gestum í myndveri Stöðvar 2 þegar Vilhjálmur prins og Kate Middleton játast hvort öðru frammi fyrir Guði og mönnum í kirkjunni Westminster Abbey föstudaginn 29. apríl.

Það virðist því ekki vera neinn einkaréttur á útsendingu frá konunglegum brúðkaupum því eins og kom fram í fjölmiðlum í síðustu viku þá verður einnig sýnt beint frá athöfninni á RÚV. Þær berjast því um sitthvað fleira en bara landsleik í handbolta. Bogi Ágústsson og Elísabet Brekkan lýsa því sem fyrir augum ber.

Hildur Helga er spennt fyrir brúðkaupinu.
„Við Elísabet höfum nú gert eitthvað svipað saman áður, gott ef það var ekki brúðkaup hjá dönsku konungsfjölskyldunni og svo lýstum við líka einu sinni jarðarför. Það er alltaf voðalega gaman að lýsa einhverju í beinni útsendingu," segir Bogi sem kveðst þó ekki vera konungssinni númer eitt á Íslandi.

Bein útsending hefst klukkan sjö um morguninn en Bogi var efins um að hann og Elísabet hæfu störf svo snemma. Henni lýkur síðan klukkan 12.34, svo því sé haldið til haga.

Hildur Helga er spennt fyrir brúðkaupinu og segir þetta alltaf vera skemmtilegan viðburð. Og ekki veiti nú af í öllu þessu volæði.

„Ég veit að það er fólk úti um allan bæ sem ætlar að halda partí. Ég á vinkonur sem fara og sækja ömmurnar á elliheimilin, kaupa brandý og konfekt og horfa á brúðkaupið."- fgg






Fleiri fréttir

Sjá meira


×