Kæra útgáfu leyfis frá Orkustofnun 9. ágúst 2011 07:00 Hvergerðingar hafa einnig gagnrýnt virkjanaáform við Bitru, enda eyðileggi þau Reykjadal sem útivistarsvæði. Hveragerði hefur kært útgáfu rannsóknarleyfis í Grændal.
Bæjarstjórn Hveragerðis hefur sent iðnaðarráðuneytinu kæru vegna útgáfu rannsóknarleyfa í Grændal í Ölfusi. Leyfið var gefið út 10. maí og hefur sætt mikilli gagnrýni, þar með talið frá iðnaðarráðherra sem fór fram á munnlegan rökstuðning fyrir veitingunni. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri Hveragerðis, segir Hvergerðinga mjög ósátta við að vera ekki umsagnaraðilar að málinu. Hluti rannsóknarsvæðisins sé innan bæjarmarka sveitarfélagsins og því eðlilegt og í samræmi við eðlilega stjórnsýslu að leita umsagnar þess. „Í öllu þessu ferli er sérkennilegt að Hveragerði sé ekki umsagnaraðili þegar verið er að skipuleggja og gera áætlanir um stórfellda uppbyggingu virkjana í túnfætinum hjá okkur,“ segir Aldís. Þar á hún bæði við rannsóknir í Grændal, Grænsdal eins og heimamenn nefna hann, og virkjanir við Bitru. Aldís segir að virkjanir þar muni eyðileggja Reykjadal sem ferðamannasvæði. Samkvæmt upplýsingum frá Orkustofnun er Hveragerðisbær ekki aðili að málinu, rannsóknarsvæðið sé innan Ölfuss. Sveitarstjórn Ölfuss gaf rannsóknunum neikvæða umsögn. Aldís telur að skilyrðislaust eigi að vernda náttúruna í Grændal og Reykjadal og vísar til skýrslu Náttúrufræðistofnunar Íslands, en þar hafi Grændalur verið í hæsta verndunarflokki háhitasvæða og náttúran þar sögð á heimsmælikvarða. Leyfi var gefið út fyrir rannsóknum bæði í mynni dalsins og botni hans. „Ef borað verður innst í Grænsdal kallar það á veglagningu niður dalinn eða inn hann. Það er alveg sama hvernig maður snýr málinu, með því er búið að eyðileggja svæðið,“ segir Aldís. Engu skipti hvort nýtanleg orka finnist þar eða ekki. Sunnlensk orka ehf. sækir um leyfi til rannsókna. Hveragerðisbær var á meðal eigenda fyrirtækisins þar til í vetur, en þá sagði bærinn skilið við það. „Við vildum ekki sjá virkjun þarna og hagsmunir Sunnlenskrar orku og Hveragerðis fóru ekki saman.“ Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra gagnrýndi útgáfu leyfisins á sínum tíma og í viðtali við Fréttablaðið 4. júní sagði hún alla þurfa að stíga varlega til jarðar á meðan unnið væri að rammaáætlun um verndun og nýtingu náttúrusvæða. „Það er augljóst að það er eitthvað að í lagaumhverfinu ef þeir telja sig knúna til að komast að þessari niðurstöðu,“ sagði ráðherra þá. kolbeinn@frettabladid.is
Mest lesið Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Innlent Um þúsund bréfberar misst fingur eða framan af fingri á fimm árum Erlent Úkraínumenn aðstoða uppreisnarmenn í Malí gegn Wagner-liðum Erlent „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Innlent Þolinmæði Færeyinga gagnvart Norðurlandaráði á þrotum Erlent Mælir gegn notkun á teflonvörum Innlent Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Innlent Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum Innlent Hægt veður í dag en myndarleg lægð á leiðinni Veður Grunar vinstriöfgamenn um græsku Erlent Fleiri fréttir Gýs á næstu dögum Samtök atvinnulífsins blása á gagnrýni formanns VR Segir Helga ekki hafa bætt ráð sitt Maður hætt kominn eftir ísbjarnarárás Bilið aldrei meira milli karla og kvenna Lúxussnekkja Ratcliffe í Reykjavíkurhöfn Bugaðar á bak við eldavélina að baka fyrir TikTok Almennir borgara eltu uppi þjófa í tveimur aðskildum málum Hlaupið marki líklega upphaf á aukinni virkni í Kötlu Skorar á Guðrúnu að fallast ekki á lausn Helga frá störfum „Fólkið verður hreinlega að rísa upp“ Glæsileg 64 ára gömul rúta vekur mikla athygli Þyrlusveitin sinnti óvanalegu útkalli á Helgafelli Fólk byrjað að fá forsetaafslátt Mælir gegn notkun á teflonvörum Taumlaus græðgi, hlaup og umdeild bílakaup „Ekkert forsetabíla-hókuspókusprútt hér alla daga“ Frétti á eftir samstarfsfólki að ekki væri óskað eftir vinnuframlagi Einn slasaður í mótorhjólaslysi við Látrabjarg Íslenskir þjóðbúningar vekja lukku á Ólafsvöku Mohamad vill flytja af landi brott Enn mikið vatn í ám þótt dregið hafi úr rigningu Eigandi Brimborgar gefur upp viðskiptakjörin Einn besti dagur sumarsins í Reykjavík um helgina Rannsaka þátt rútubílstjóra sem fylgdist með hraðanum í síma Bílakaup verðandi forseta Heilmiklar skemmdir sem mun taka sinn tíma að gera við Engin merki um hlaupóróa lengur Kortleggja gamlar sundlaugabyggingar um allt land Ferðamenn í vanda í ám á Fjallabaksleið og Þórsmörk Sjá meira