Innlent

Búið að slökkva eldinn á Nesvegi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fjölmennt lið slökkviliðs- og lögreglumanna var á staðnum. Mynd/ JMG.
Fjölmennt lið slökkviliðs- og lögreglumanna var á staðnum. Mynd/ JMG.
Búið er að slökkva eldinn sem kom upp á Nesvegi í kvöld. Sex manns voru í húsinu þegar eldurinn kom upp, en íbúðin þar sem eldurinn kviknaði var hins vegar mannlaus. Allar rúður brotnuðu á hæðinni þar sem eldurinn kom upp og virðist mikill hiti hafa verið inni í húsinu. Núna er verið að reykræsta íbúðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×