Samningur í jólagjöf 3. janúar 2011 00:00
Rokksveitin We Made God gefur út sína aðra plötu, It’s Getting Colder, á föstudaginn, 7. janúar, og sama dag heldur sveitin útgáfutónleika á Faktorý. Platan kemur út á vegum ítalska plötufyrirtækisins Avantgarde Music á heimsvísu 21. janúar. „Við vorum svo heppnir að þetta útgáfufyrirtæki hafði samband við okkur. Þeir hafa verið að gefa út harðasta svartmetal á svæðinu en urðu svo heillaðir af okkur að þeir ákváðu að fara út í hinar stefnurnar á jaðrinum,“ segir söngvarinn Magnús Bjarni Gröndal. „Það er æðislegt fyrir okkur að fá svona góðan dreifingarsamning. Þetta er í raun draumur að verða að veruleika.“ Samningurinn gekk í gegn rétt fyrir jólin og fengu þeir félagar því skemmtilega jólagjöf í ár. We Made God er upphaflega úr Hafnarfirði og Kópavogi og var stofnuð fyrir sex árum. Hljómsveitin spilar hægfljótandi rokk sem stigmagnast með hverri mínútunni. Fyrsta plata hennar, As We Sleep, kom út fyrir 2008 og fékk hún frábæra dóma í breska tímaritinu Q, fjórar stjörnur af fimm mögulegum. Þar var sveitinni lýst sem blöndu af Sigur Rós og Deftones. Að sögn Magnúsar er stefnt að því að fylgja plötunni eftir erlendis á árinu. „En við erum að vinna mest í því að koma henni út hérna heima. Svo fer maður að hugsa um hitt. Við ætlum að taka þetta í hægum skrefum.“ - fb Hér fyrir ofan má sjá myndband við lag af nýju plötunni, Oh Dae-su.
Mest lesið Fékk hjartaáfall og missti 50 kíló Lífið Stjörnulífið: Kossaflens og Inga Lind ástfangin á Spáni Lífið Loksins, loksins unnu skáldin kvalara sína! Lífið Illuminati varð táknmynd ótta við ósýnileg öfl Lífið „Þetta er saga um sambandsslit tveggja vinkvenna“ Lífið Veittu verðlaun fyrir dónalegasta orðið á Íslandsmeistaramóti í skrafli Lífið Þórhildur og Hjalti eiga von á barni Lífið Sumarið er komið á Boozt Lífið samstarf Jiggly Caliente dragdrottning látin Lífið Halla og Biden hittust í útför páfans Lífið Fleiri fréttir Illuminati varð táknmynd ótta við ósýnileg öfl Infocapital Íslandsmeistari eftir æsispennandi keppni Stjörnulífið: Kossaflens og Inga Lind ástfangin á Spáni Fékk hjartaáfall og missti 50 kíló Loksins, loksins unnu skáldin kvalara sína! Veittu verðlaun fyrir dónalegasta orðið á Íslandsmeistaramóti í skrafli Þórhildur og Hjalti eiga von á barni Jiggly Caliente dragdrottning látin „Prófið að plokka og sjáið árangurinn“ Björn plokkar í stað Höllu „Þetta er saga um sambandsslit tveggja vinkvenna“ Krakkatían: Pokémon, spænska og hjólreiðakeppni Halla og Biden hittust í útför páfans Á erfitt með að muna nöfnin á börnum vina sinna Fréttatía vikunnar: Frans páfi, Kaffi kjós og tónleikar Hildur Vala og Mikael Kaaber í aðalhlutverkum Moulin Rouge Vonast til að fá fullkomna sundlaug í Reykjadal Raf- og danstónlistarveisla í Austurbæjarbíó Ekkert sundfataatriði í Ungfrú Ísland unglinga Sérfræðingar deila um typpi refilsins en Sigríður Hagalín er búin að telja Ein glæsilegasta kona landsins á lausu Glæsihús á Seltjarnarnesi á 240 milljónir Fór í tvær lýtaaðgerðir á sama deginum Á eiginmann og kærasta og allir sáttir Öskurdrottningin Lar Park Lincoln er látin Sautján langveik börn fengu ferðastyrk Syngja Húsavík á Húsavík með stúlknakórnum Laufey og Júnía fögnuðu afmælisdeginum í Disney-garðinum Egill Logi Jónasson valinn bæjarlistamaður Akureyrar Fjölbreytt dagskrá á vorhátíð í Árborg Sjá meira