Innlent

Ótrúlegur trassaskapur: Skráningarnúmer fjarlægð af 40 bílum

Mynd/Anton Brink
Um helgina voru skráningarnúmer fjarlægð af 40 ökutækjum á höfuðborgarsvæðinu sem voru ýmist ótryggð eða óskoðuð og jafnvel hvorutveggja, að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Þar segir að trassaskapur sumra í þessum efnum sé með ólíkindum.

Töluvert er um ótryggð og óskoðuð ökutæki á höfuðborgarsvæðinu og hvetur lögreglan eigendur og umráðamenn þeirra til að gera þar bragarbót á. Undanfarið hafa skráningarnúmer verið fjarlægð af mörgum ökutækjum sem uppfylltu ekki ákvæði um skoðun eða voru ótryggð. Lögreglan heldur eftirlitinu áfram og hvetur ökumenn til að passa upp á þetta svo ekki þurfi að koma til fyrrnefndra aðgerða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×