Viðskipti erlent

Evrópa rambar á barmi fjármálahruns

Skuldakreppan í Evrópu fer versnandi með hverri mínútunni. Greining Danske Bank telur að álfan rambi á barmi fjármálahruns og ef ekki verði gripið í taumana strax blasi ný fjármálakreppa við í Evrópu.

„Þetta gæti orðið mjög alvarlegt. Fjármálamarkaðir eru við það að brotna saman. Vextir á ítölskum ríkisskuldabréfum hækka ört frá mínútu til mínútu,“ segir Frank Ölund Hansen aðalhagfræðingur Danske Bank í samtali við Jyllands Posten. „Ef leiðtogar Evrópu finna ekki lausn mjög fljótlega er staðan því miður að þróast yfir í evrópska fjármálakreppu.“

Fram kemur í frétt Jyllands Posten að yfirlýsing sem send var að loknum neyðarfundi æðstu embættismanna ESB í gærdag hafi ekki róað markaðina eins og til stóð. Hansen segir að aðgerðaáætlun hafi skort í yfirlýsingunni.

Sérfræðingar Nordea bankans eru sammála mati Danske Bank. Michael Borre aðalráðgjafi Noreda í erlendum hlutabréfaviðskiptum segir í samtali við Ritzau að óttinn við nýja fjármálakreppu færist í aukana. Borre segir að ef Ítalía eða Spánn komist í þrot muni slíkt verða náðarhöggið fyrir hlutabréfamarkaði Evrópu.

Vextir á ítölskum og sænskum ríkisskuldabréfum nálgast nú óðum 7% markið. Talið er að við þetta mark séu skuldirnar orðnar ósjálfbærar. Þegar þessu marki var náð hjá Grikkjum, Portúgölum og Írum þurftu þessi lönd að leita á náðir Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og ESB með neyðarlán til að halda sér gangandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×